Færslur með efnisorðin ‘afeitrun’

06.03 2009 - 44 ummæli »

Árangur SÁÁ

SÁÁ hefur náð góðum árangri í því sem þeir eru bestir, að afeitra menn. Yfir 200 einstaklingar yngri en 20 ára fara árlega í meðferð hjá SÁÁ. Um helmingur þeirra ná verulegum árangri og þurfa ekki að leita ásjár samtakana aftur. Ef sama hlutfall ungmenna  næði álíka árangri í Bandaríkjunum væru þeir um 100 þúsund manns. Fjárhagslega kann það að vera dýrt að bjarga þessum sálum, en einstaklingur í neyslu er þjóðfélaginu, fjölskyldum og öðrum samferðamönnum þung byrði. Í raun stjórnlaust rekald, þar til viðkomandi sér að sér og samhjálpin birtist.

Að bjarga 100 vímuefnaneytendum frá glötun götunnar hefur miklar jákveðnar breytingar í för með sér fyrir enn fleiri fjölskyldur. Hamingja verður varla mæld eða árangurstengd. Líf án vímu gefur öllum þessum einstaklingum ný tækifæri  til að byrja nýtt líf. Býður upp á tilveru sem skilar góðum endurminningum í stað svartnættis. Að getað greint börn og unglinga sem eru í áhættuhóp fyrir vímuefnum gefur nýjar víddir.  Foreldrar geta brugðist fyrr við og viðkomandi lærir að þekkja sín takmörk.

Ég geri ráð fyrir að SÁÁ sé stöðugt að endurskoða sín vinnubrögð eins og aðrir sem fást við svipuð mál. Aftur á móti er verið að takast á við mjög erfið mál. Þeir “bullshit” menn benda á hörmungarnar, en hafa trúlega ekki gefist upp.






Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Facebook

Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar