27.9 2011

Opið bréf til þingmanna suðurkjördæmis eftir félagsfund Lögreglufélags Suðurnesja sem haldinn var þann 26. september 2011.

Þann 26. september 2011 var haldinn fjölmennur félagsfundur félagsmanna Lögreglufélags Suðurnesja. Tilefni fundarins var að fara yfir niðurstöðu gerðadóms vegna kjaradeilu lögreglumanna við ríkisvaldið sem var birt þann 23. september s.l. Fram að þeim tíma höfðu lögreglumenn verið kjarasamningslausir í um 300 daga. Þó svo að veik kjaraleg staða lögreglumanna gagnvart viðmiðunarstéttum, t.d. tollvörðum, sé viðurkennd í geinargerð gerðadóms er ákveðið að virða að vettugi fyrra gerðadómsfordæmi. Þessi niðurstaða er lögreglumönnum og … meira



26.9 2011

Opið bréf til Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar

Ég sendi þetta bréf til að lýsa fullkominni vanþóknun minni á vinnubrögðum Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar hvað varðar rekstur leikskóla hér í borg. Þannig er mál með vexti að undirritaður á son sem er fæddur 29. ágúst 2009 og er því orðinn ríflega tveggja ára. Langt er um liðið síðan að við foreldrar hans sóttum um leikskólapláss fyrir drenginn á leikskólanum Dvergasteini. Reyndar er svo langt síðan að þá var ekki einu sinni búið að sameina leikskólana Dvergastein og Drafnarborg líkt og nú hefur verið gert. Leið svo … meira



22.9 2011

Um félagslíf og fleira í Menntaskólanum í Kópavogi


Nemendafélag Menntaskólans í Kópavogi hefur núna verið starfrækt í fjöldamörg ár, eða allt frá 1973 þegar skólinn var stofnaður. Nemendafélagið hefur þurft að sæta þrengingar, bága vinnuaðstöðu, símaleysi, kennaraverkföll, byltingar og umturnanir á skólakerfinu og nemendaráð hefur staðist allar þessar raunir og gert ótrúlegustu hluti úr þessum og fleiri erfiðleikum þökk sé þrautseigju og dugnaði nemenda Menntaskólans í Kópavogi. En nú stendur félagslíf skólans á hálum og þunnum ís. Nemendaráð skólans hefur staðnað í og er á 5 … meira



12.9 2011

Þegar peningarnir tala, þá þagnar skynsemin

Erlendur maður hefur óskað eftir því, að fá keypta jörðina Grímsstaði á Fjöllum, eða um 100 ferkílómetra af Íslandi. Á jörðinni ætlar hann að reisa stórt fimm stjörnu hótel og gera 18 holu golfvöll. Til þess arna hefðu honum nægt 2-3 ferkílómetrar. Engu breytir af hvaða þjóðerni þessi maður er, þegar ýmsar spurningar vakna um síðferðilegan og lagalegan rétt til landsölu af þessu tagi. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar, að það sé nánast heilög skylda minnar kynslóðar, þeirrar næstu og þarnæstu og allra komandi kynslóða, að … meira



4.9 2011

Ekki þér samboðið, Steingrímur!

Fjármagnstekjur á að skattleggja. Því er ég sammála. Skattameðferð þeirra má mín vegna meira að segja vera sú hin sama og á við um aðrar tekjur. En fjármagnstap er hvergi skattstofn. Hvergi í veröldinni. Nema á Íslandi. Núna. Hvað á ég við með því? Ég á við að þegar verðbólga er meiri en nemur innlánsvöxtum banka þá er fólk að tapa sparifé sínu. Séu því boðin einhver 3% í ávöxtun, eða þaðan af minna, fyrir að leggja sparifé sitt í banka en verðbólga komin yfir 5% þá er fólk að tapa. Spariféð er þá að brenna upp. Svo … meira



29.8 2011

Stolnar fjaðrir?


Nafn Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrum utanríkisráðherra, er þegar skráð feitu letri í sögu Eystrasaltsríkjanna. Barátta hans fyrir viðurkenningu alþjóðasamfélagsins á sjálfstæði ríkjanna þriggja fyrir 20 árum verður lengi í minnum höfð. Jón Baldvin sýndi þá mikinn pólitískan kjark og þor. Hann gekk gegn hótunum Sovétríkjanna, þrýstingi Bandaríkjanna, viðvörun Þjóðverja um að spilla ekki fyrir sameiningu Þýskalands og aðgerðarleysi og jafnvel andúð hinna norrænu ríkjanna og lágkúru nokkurra íslenskra stjórnmálamanna og sem hrun í … meira



24.8 2011

Að troða fíl í Fiat Uno

Svandís Svavarsdóttir, starfandi menntamálaráðherra talaði um frekju KVÍ í fjölmiðlum á dögunum. Nú er ég ekki starfsmaður menntamálaráðuneytisins né í samninganefnd KVÍ svo ég ætla ekkert að leggja sérstakt mat á orð hennar, ég þekki ekki samhengið sem orðin voru sögð í. Þau fengu mig hins vegar til að hugsa og nú hef ég ákveðið að vera bara frekur. Þetta kann að hljóma furðulega þar sem frekt fólk er oftast talið mjög leiðinlegt en ég hef mínar ástæður fyrir því. Skoðum þetta nánar.   Ísland er gott land(ef við mínusum … meira



24.8 2011

Opið bréf til Jóhönnu Sigurðardóttir frá nemum við Kvikmyndaskóla Íslands.

Nú eru sex dagar síðan að ég, Sveinbjörn og Arnar sátum á fundi með þér, Jóhanna Sigurðardóttir. Sat sitjandi menntamálaráðherra Íslands, Svandís Svavarsdóttir þann fund einnig.  Þar talaðir þú um að tryggt yrði að skólastarf myndi hefjast sem allra fyrst og kraftur yrði nú settur í að leysa málin.  Það sama staðfestir þú við kvöldfréttir RÚV.  Á þessum fundi tókst þú í hendur okkar þriggja og kvaddir okkur með loforði um fund strax daginn eftir, þ.e.a.s. laugardaginn 20. ágúst, sem er táknrænt fyrir þær sakir að þá var höfum … meira



24.8 2011

,,Ég ætla að verða lögga þegar ég verð stór.“

Hversu margir ungir drengir og stúlkur ætli séu að svara á þennan hátt þegar þau eru spurð þessarar klassísku spurningar? Sem betur fer eigum við enn til fólk sem vill sinna þessu starfi þrátt fyrir að starfið sé oft á tíðum gríðarlega erfitt bæði andlega og líkamlega. Ég hóf minn feril í löggunni fyrir 11 árum síðan og hef því upplifað margt bæði skemmtilegt en einnig margt sorglegt á mínum starfsferli sem lögreglumaður eins og gefur að skilja. Starfsumhverfið hefur breyst mikið á þessum 11 árum. Öll þekkjum við ástandið innan Er og … meira



22.8 2011

Opið bréf til menntamálaráðherra

Til Svandísar Svavarsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra. Frá Ólafi Hauki Johnson, skólastjóra Menntaskólans Hraðbrautar. Sæl vertu. Ég hef ítrekað reynt að ná fundi þínum í ráðuneytinu en ekki verið virtur svars. Tilefnið er ræða við þig um málefni Menntaskólans Hraðbrautar og samskipti skólans við ráðuneyti mennta- og menningarmála. Hér eru fáein atriði sem ég vildi fjalla um en fæ af einhverjum ástæðu ekki tækifæri til. Þess vegna kýs ég að senda þér opið bréf, enda á efni þess erindi við marga fleiri en okkur tvö. 1. hefur … meira






Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Facebook

Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar