Þínar fréttir, þín skoðun






16.1 2012 - Ummæli ()

Jólasýning Þjóðleikhússins

Höfundur: Tryggvi Gíslason - Fyrrverandi skólameistari Menntaskólans á Akureyri
Flokkur: Óflokkað  

Enginn íslenskur rithöfundur á síðustu öld stenst samjöfnun við Halldór Laxness. Þekking hans og innsæi, dirfska, orðvísi og víð veraldarsýn tekur öðru fram. Hann var skáld minnar kynslóðar, en virðist síður höfða til ungu kynslóðarinnar, a.m.k. ekki þess hluta hennar sem alinn er upp við sýndarveruleika bandarískra kvikmynda. Ef til vill væri ástæða til þess að kynna ungu kynslóðinni enn frekar heim Halldórs Laxness til þess auka henni gagnrýni og opna henni víðari sýn. Ein leiðin til þess er að flytja verk hans á leiksviði eins og Þjóðleikhúsið hefur gert áratugum saman, síðast með eftirminnilegri uppfærslu á Íslandsklukkunni, sérstæðri sýningu á Gerplu og nú með áhrifamikilli sýningu á sögu Ólafs Kárasonar.

Það er ekki vandalaust að koma mikilfenglegum fjórleik Halldórs Laxness um skáldið Ólaf Kárason til skila í einni leiksýningu. Þetta mikla verk fjallar um lífið og ástina, um manninn og guð, um kúgun, svik og ánauð og um vonina, fegurðina og kærleikann og hinn breyska og vanmáttuga einstakling og baráttu hans fyrir réttlæti og góðvild. Aðalpersónan, Ólafur Kárason – skáldið sem ber heiminn á herðum sér – hefur sterka skírskotun til Krists, ljóss heimsins, mannssonarins sem ber allar syndir heimsins og á móður en engan föður – nema föðurinn á himnum.

Kjartani Ragnarssyni hefur ásamt leikurum, leikmyndasmiðum, ljósa- og búningahönnuðum og öðru hæfu starfsfólki sínu tekist að gera sýningu þar sem orðlist Halldórs Laxness nýtur sín og kjarni fjórleiksins kemur fram, vanmáttug barátta mannsins fyrir réttlæti og jöfnuði, þráin eftir ást og leitin að guði. Með þessari sýningu hefur Kjartan Ragnarsson enn einu sinni sýnt listræna hæfni sína og sýning hans ber vitni um að við eigum góða leikara og Þjóðleikhúsið hefur enn einu sinni gegnt því meginhlutverki sínu sem musteri íslenskrar tungu að sinna íslenskum skáldskap og íslenskum leikverkum. Vonandi verður þessi sýning til þess að opna augu ungu kynslóðarinnar fyrir mikilfengleik íslenskra bókmennta – og þá ekki sýst mikilverðu hlutverki Halldórs Laxness sem rithöfundar.



« Skömm Ríkisútvarpsins

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Nýtt inn um lúguna

  • Jólasýning Þjóðleikhússins
  • Skömm Ríkisútvarpsins
  • Gráir fyrir járnum á Gaza
  • Sameiningartákn þjóðar
  • Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.
  • Afleit stærðfræði
  • Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
  • Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Facebook

Flokkar

  • Atvinnumál (18)

  • Aðsendar greinar (5)
  • Borgarskipulag (3)
  • Efnahagsm (7)
  • Efnahagsmál (59)
  • ferðaþjónusta (2)
  • Fjármál (23)
  • Fjölmiðlar (10)
  • Heilbrigðismál (18)
  • Húsnæðismál (5)
  • Húsvernd (2)
  • Ítalía (2)
  • Jafnréttismál (2)
  • Ljóð (1)
  • Lögfræði (7)
  • Óflokkað (15)
  • Rannsóknarskýrslan (3)
  • Rekstur (4)
  • Saga (8)
  • Samfélagið (82)
  • Sjávarútvegsmál (20)
  • Skólamál (3)
  • stjórnlagaþing (1)
  • Stjórnmál (146)
  • stjórnsýsla (9)
  • Sveitarstjórnarmál (5)
  • Umhverfismál (5)
  • Uncategorized (3)
  • Utanríkismál (14)
  • Viðskipti (36)
  • Eyjan að upphafssíðu
  • Auglýstu á Eyjunni

Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Lúgan

Undirvalmynd

  • Lúgan
Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar

Eyjan - Smáratorgi 3, Kópavogi - eyjan@eyjan.is

  • Um Eyjuna
  • Auglýsingar