Netfangið er: lugan@eyjan.is
Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.
Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Nú stendur Ísraelsher grár fyrir járnum og segist tilbúinn að hefja nýtt jólagereyðingarstríð á Gaza-ströndinni.
Ég sé hvergi skrifað um þetta á íslenskum fréttasíðum sem eru uppteknar af þyngd Ásdísar Ránar, túrtappaauglýsingum og öðru yndisefni sínu.
Nú erum við nýbúin að viðurkenna ríki Palestínumanna. Ég sakna þess að heyra ekki mótmælaraddir við blygðunarlausum hótunum ísraelska hersins um yfirvofandi múgmorð á saklausu fólki og eyðileggingu. Ljóst er að þeir þykjast geta farið sínu fram, óhræddir við linkuna Óbama, en þrátt fyrir að hafa orðið uppvísir að margvíslegum stríðsglæpum í jóladrápunum 2008 hafa þeir í engu verið látnir svara fyrir glæpi sína.
Ég skora á Íslendinga að mótmæla kröftuglega fyrirhugaðari árás eins öflugasta herveldis Jarðar á eitt þéttbýlasta svæði hennar til drápa og limlestinga á saklausum borgurum, konum og börnum.
Utanrískisráðherra ætti að senda kröftug mótmæli til ríkisstjórnar Ísraels, USA og einnig til Evrópusambandsins og það strax, áður en þessi nýjasta útrýmingarherferð Ísraelsmanna hefst!