Þínar fréttir, þín skoðun






15.11 2011 - Ummæli ()

Afleit stærðfræði


Höfundur: Vilborg Auður Ísleifsdóttir - doktor í sagnfræði
Flokkur: Saga, Stjórnmál, Uncategorized  

Fyrir nokkrum dögum birtist prófessor Hannes Hólmsteinn Gissurarson á skjánum í Kastljósi, bústinn og glaðbeittur. Hann var að kynna bók sína um hin nánu tengsl íslenskra sósíalista við Moskvu og honum var tíðrætt um Rússagullið, sem hann kvað hafa fjármagnað verkfall Dagsbrúnar í desember 1952. Prófessorinn bar saman mannvonsku nasista og kommúnista og sagði kommúnista hafa myrt 100 milljónir manna meðan nasistar hefðu einungis myrt 20 milljónir – hinir síðarnefndu þar með verið öllu skárri.

Þúsund ára ríki nasista stóð í 12. Á þessum tíma hrundu þeir af stað síðari heimstyrjöldinni. Í Þýskalandi hafa menn það fyrir satt að sú styrjöld hafi tortímt 50 milljónum manna, þótt sú talning geti aldrei orðið nákvæm. Miklu veldur sá er upphafinu veldur. Hvað hefði orðið, ef þetta ríki hefði staðið í 70 ár eins og Sovétríkin? Það hefði varla nokkur maður verið uppistandandi í Evrópu! Hérna gleymir prófessorinn tímafaktornum – hefði kannski átt að vanda sig betur.

Annars er lítið vit í þessum samanburði – „hann haltrar“ eins og sagt er á þýsku. Hann er svona álíka gáfulegur og að velta því fyrir sér, hvort betra hefði verið að deyja í Auschwitz eða í Stalíngrad. Slíkur samanburður má teljast móðgun við þá, sem týndu lífi í þessum hremmingum. Þetta voru „heimsins ráð, sem brugga vondir menn.“ Við Íslendingar megum kyngja klökkvanum út af Hruninu, en þó var það einungis bankakerfið, sem lenti í höndum loddara, lukkuriddara og þjófa en ekki allt ríkið í höndum glæpamanna, eins og Rússar og Þjóðverjar máttu upplifa og margir gjalda lífi við.

Þá er skynsamlegra að tala um Rússagullið. Það má furðu gegna, hversu gjafmildir Rússar voru við Dagsbrún á þessum árum, eins og þeir höfðu hlotið miklar búsifjar í síðari heimsstyrjöldinni. En ef Hannes hefur óyggjandi sannanir fyrir þessu, verðum við að horfast í augu við þær.

Hvað snerti verkfallið 1952 þá var Dagsbrún og öðrum verkalýðsfélögum nokkur vandi á höndum. 1950 fengu útgerðarmenn gengið fellt fyrirtækjum sínum til hagsbóta og síðan 98% af skuldum sínum niðurfelldar, en alþýða manna, (t.d. sjómenn., sem lagt höfði sig í lífsháska við að sigla með fisk til Bretlands öll stríðsárin) missti sparifé sitt. Ýmsir misstu fyrirtæki sín. Um þessa málavexti getur Hannes Hólmsteinn lesið í bók Njarðar P. Njarðvík, Spegill þjóðar. Þar fjallar Njörður einnig um hermangið, sem kallaði á spillingu, ójöfnuð og andstyggilega auðsöfnun þeirra, sem sátu við þá kjötkatla. Og svo má ekki gleyma Marshall-aðstoðinni. Þetta er líklega Kanagullið.

Það væri verðugt verkefni fyrir prófessorinn að taka sér fyrir hendur að skrifa sögu hermangsins og þeirra, sem þar koma við sögu. En hann verður að vanda sig, annars fær hann svartan blett á tunguna.



« Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar. »

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Nýtt inn um lúguna

  • Jólasýning Þjóðleikhússins
  • Skömm Ríkisútvarpsins
  • Gráir fyrir járnum á Gaza
  • Sameiningartákn þjóðar
  • Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.
  • Afleit stærðfræði
  • Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
  • Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Facebook

Flokkar

  • Atvinnumál (18)

  • Aðsendar greinar (5)
  • Borgarskipulag (3)
  • Efnahagsm (7)
  • Efnahagsmál (59)
  • ferðaþjónusta (2)
  • Fjármál (23)
  • Fjölmiðlar (10)
  • Heilbrigðismál (18)
  • Húsnæðismál (5)
  • Húsvernd (2)
  • Ítalía (2)
  • Jafnréttismál (2)
  • Ljóð (1)
  • Lögfræði (7)
  • Óflokkað (15)
  • Rannsóknarskýrslan (3)
  • Rekstur (4)
  • Saga (8)
  • Samfélagið (82)
  • Sjávarútvegsmál (20)
  • Skólamál (3)
  • stjórnlagaþing (1)
  • Stjórnmál (146)
  • stjórnsýsla (9)
  • Sveitarstjórnarmál (5)
  • Umhverfismál (5)
  • Uncategorized (3)
  • Utanríkismál (14)
  • Viðskipti (36)
  • Eyjan að upphafssíðu
  • Auglýstu á Eyjunni

Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Lúgan

Undirvalmynd

  • Lúgan
Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar

Eyjan - Smáratorgi 3, Kópavogi - eyjan@eyjan.is

  • Um Eyjuna
  • Auglýsingar