Þínar fréttir, þín skoðun






13.11 2011 - Ummæli ()

Um snjallsímasvindl í háskólum landsins

Höfundur: Háskólanemar -
Flokkur: Samfélagið, Skólamál  

(Frá ritstjórn Eyjunnar: Sú almenna regla gildir, að aðsendar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar nema sérstakar aðstæður komi til. Eyjan hefur kynnt sér bakgrunn þessa máls og telur að greinin eigi erindi við lesendur þótt höfundar hennar komi ekki fram undir nafni.)

Á seinustu árum, og þá sérstaklega á þessu ári, hafa snjallsímar orðið mjög vinsælir hér á landi. Með þessum símum er ekki bara hægt að spila leiki, taka upp myndbönd og ljósmyndir heldur er hægt að vista heilu gagnasöfnin inni á þessu litla tæki. Snjallsímar, eins og við þekkjum þá í dag, eru í raun ekki lengur símtæki – heldur litlar nettengdar tölvur sem m.a. er hægt að nota sem síma.

Eins og með margt annað þá hefur þetta í för með sér mikla kosti og mikla galla. Ástæðan fyrir þessum skrifum okkar er sú ógn sem að háskólasamfélaginu steðjar í þessum efnum. Það er nefnilega orðið þekkt að nemendur eru farnir að vista glósur sínar í snjallsímum sínum og í miðju prófi fara þeir á salernið þar sem þeir geta nánast eftirlitslaust rifjað upp námsefnið í símanum og mætt fullir fróðleiks aftur í sæti sitt í prófinu.

Sumar deildir innan, t.a.m. innan Háskóla Íslands, eru með próf sem nemendur verða að standast til þess að geta haldið áfram námi. Það sem einkennir þessi próf er yfirleitt há fallprósenta og oft eru prófin þannig uppbyggð að þau snúa að litlum hluta námsefnisins þar sem þú annaðhvort ert með allt þitt á hreinu, ert tiltölulega heppinn eða þú ferð ekki í gegn.

Nemendur búa sig yfirleitt undir þannig próf með því að brjóta niður námsefnið, búa til svokallaðar „beinagrindur“ og læra megnið af námsefninu utanbókar – enda er þjálfun í því hluti af prófinu. Þegar nemendur eru hins vegar farnir að geta stólað á það að sjá hvaða spurningar koma (sem gilda e.t.v. 30% hvor) og geta síðan farið á salernið og rifjað upp beinagrindina með hjálp símans þá eru þeir augljóslega komnir með dágott forskot á samnemendur sína og eru um leið að svindla á prófinu.

Það eru alltaf einhverjir sem reyna að svindla á prófum og hefur það eflaust tíðkast í gegnum mannkynssöguna með ýmsu móti. Þegar svindlið er hins vegar orðið svona auðvelt og jafn umtalað innan háskólasamfélagsins og raun ber vitni þá er kominn tími til aðgerða. Dæmi eru um nemendur hafi komist upp með athæfi sem þessi og hafi gortað sig af því við aðra nemendur og jafnvel tekið svo til orða að þeir „sigrað kerfið“.

Það er erfitt að meina fólki að fara á salernið í prófi. Yfirleitt er það þannig að sá aðili sem situr yfir prófinu fylgir nemanda á salernið. Hann getur hins vegar ekki fylgt honum alla leið inn á salernisbásinn. Það myndi eflaust vera eðlilegt að leitað yrði á nemanda, þ.e. til þess að ganga úr skugga um að hann sé ekki með neitt á sér sem getur hjálpað honum. Þetta er hins vegar ekki gert. Nemendur hafa frjálsar hendur þegar inn á salernið er komið.

Við sem skrifum þessa grein myndum hins vegar taka því fagnandi ef á okkur væri leitað, þar sem það myndi leiða í ljós að maður væri ekki að brjóta neinar reglur.

Margir nemendur stóla á námslán til þess að framfæra sér yfir námstímann. Námslánakerfið sem við búum við í dag er þannig uppbyggt að þú þarft að standast að minnsta kosti 18 ECTS einingar til þess að fá lágmarksnámslán. Þegar aðili stendur frammi fyrir því að taka jafnvel eitt próf sem ræður úrslitum um það hvort þú annars vegar færð að halda áfram námi og hins vegar hvort þú færð námslán greidd að önn lokinni þá er manni ekki orðið sama um það þegar samnemendur manns komast upp með svindl skipti eftir skipti.

Það er bagalegt þegar menn hafa lagt á sig margra mánaða vinnu til þess eins að standast ákveðið próf þegar aðrir aðilar komast upp með það að þurfa vart að gera annað en að millifæra glósur frá fartölvu yfir á snjallsíma sem þeir fá síðan að taka með sér í próf.

Lausn á þessu væri einfaldlega að banna nemendum að taka með sér síma í próf, enda hafa þeir engin not fyrir slík tæki á meðan á prófi stendur. Væri því eðlilegast að nemendur væru beðnir um að slökkva á farsímum og þeir geymdir á ákveðnum stað fremst í stofunni þar sem próf er tekið; ef þeir yfirhöfuð þurfa að taka síma með sér. Þá í kjölfarið af því væri eðlilegt að leita á mönnum ef þeir þurfa að yfirgefa kennslustofuna í miðju prófi.

Aðrar leiðir til próftöku er vissulega eitthvað sem háskólasamfélagið þarf að skoða með alvarlegum augum. Alla jafna verður að reikna með því að próf séu gerð í þeim tilgangi að prófa þekkingu nemenda og jafnvel þannig úr garði gerð að allir séu jafnir fyrir þeim. Þegar menn eru hins vegar farnir að hafa frjálsar hendur um aðferðir til þess að svindla á þessum prófum sökum nútímatækni þá er mögulega kominn tími til einhverra breytinga.

Til dæmis mætti nefna munnleg próf, þar sem þekking nemenda er könnuð og þeir fá að tjá sig um ákveðinn hluta námsefnisins frammi fyrir óháðum matsaðilum. Þá mætti einnig nefna gagnapróf þar sem prófin væru þannig uppbyggð að nemendur leysa úr verkefnum sem eru raunhæf og nemendur leitist við að komast að einhverri niðurstöðu með hjálpa allra gagna þó þannig að nemendur geti einungis notað gögnin til þess að staðreyna að rétt hafi verið farið með og ekkert hafi gleymst – en til þess þurfa menn yfirleitt að þekkja efni gagnanna vel. Eðli málsins samkvæmt geta menn ekki verið að frumlesa efni í prófi.

Þetta vandamál virðist vera falið innan veggja háskólanna og virðast stjórnendur, sem og þeir sem sjá um kennslu, einfaldlega ekki sjá vandamálið og hversu umfangsmikið það er orðið. Það grundvallast af því að nemendur þeir, sem stunda þessa iðju, hafa einfaldlega hag af því að halda þessu innan ákveðins kjarna. Höfundar þessarar greinar vilja því koma þessu á framfæri og um leið vekja athygli á nokkrum leiðum sem gætu mögulega komið í veg fyrir þessa misnotkun. Það er skiljanlega okkar hagur að koma ekki fram undir nafni svo jafnræðis sé gætt – enda líklegt að þessi afhjúpun verði ekki vinsæl.

Á tímum sem þessum, þegar háskólar og aðrar menntastofnanir eru yfirfullar af nemendum, er mikilvægt að ákveðið aðhald sé á þessum málum. Það er hagur okkar allra, þjóðfélagsins og háskólasamfélagins, að þeir hæfustu komist áfram og að þeir sem hafa hingað til komist upp með svindl og pretti séu stöðvaðir af.



« Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?
Afleit stærðfræði »

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Nýtt inn um lúguna

  • Jólasýning Þjóðleikhússins
  • Skömm Ríkisútvarpsins
  • Gráir fyrir járnum á Gaza
  • Sameiningartákn þjóðar
  • Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.
  • Afleit stærðfræði
  • Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
  • Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Facebook

Flokkar

  • Atvinnumál (18)

  • Aðsendar greinar (5)
  • Borgarskipulag (3)
  • Efnahagsm (7)
  • Efnahagsmál (59)
  • ferðaþjónusta (2)
  • Fjármál (23)
  • Fjölmiðlar (10)
  • Heilbrigðismál (18)
  • Húsnæðismál (5)
  • Húsvernd (2)
  • Ítalía (2)
  • Jafnréttismál (2)
  • Ljóð (1)
  • Lögfræði (7)
  • Óflokkað (15)
  • Rannsóknarskýrslan (3)
  • Rekstur (4)
  • Saga (8)
  • Samfélagið (82)
  • Sjávarútvegsmál (20)
  • Skólamál (3)
  • stjórnlagaþing (1)
  • Stjórnmál (146)
  • stjórnsýsla (9)
  • Sveitarstjórnarmál (5)
  • Umhverfismál (5)
  • Uncategorized (3)
  • Utanríkismál (14)
  • Viðskipti (36)
  • Eyjan að upphafssíðu
  • Auglýstu á Eyjunni

Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Lúgan

Undirvalmynd

  • Lúgan
Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar

Eyjan - Smáratorgi 3, Kópavogi - eyjan@eyjan.is

  • Um Eyjuna
  • Auglýsingar