Þínar fréttir, þín skoðun






27.9 2011 - Ummæli ()

Opið bréf til þingmanna suðurkjördæmis eftir félagsfund Lögreglufélags Suðurnesja sem haldinn var þann 26. september 2011.

Höfundur: Stjórn Lögreglufélags Suðurnesja -
Flokkur: Uncategorized  

Þann 26. september 2011 var haldinn fjölmennur félagsfundur félagsmanna Lögreglufélags Suðurnesja. Tilefni fundarins var að fara yfir niðurstöðu gerðadóms vegna kjaradeilu lögreglumanna við ríkisvaldið sem var birt þann 23. september s.l.

Fram að þeim tíma höfðu lögreglumenn verið kjarasamningslausir í um 300 daga.

Þó svo að veik kjaraleg staða lögreglumanna gagnvart viðmiðunarstéttum, t.d. tollvörðum, sé viðurkennd í geinargerð gerðadóms er ákveðið að virða að vettugi fyrra gerðadómsfordæmi. Þessi niðurstaða er lögreglumönnum algjörlega óásættanleg og er með öllu óskiljanlegt að þessum viðmiðunarstéttum sé svo bersýnilega mismunað. Þar að auki voru lögreglumönnum sendar kaldar kveðjur í niðurstöðu gerðadóms þegar fulltrúi ríkisvaldsins í dómnum lét bóka á eftir sér að hann greiddi atkvæði með afstöðu formanns dómsins þegar áralöng venja er að sitja hjá, en með því sýndi fulltrúinn engan vilja til að komast að samkomulagi við lögreglumenn. Þar með voru lögreglumenn þvingaðir til að beygja sig undir niðurstöðuna og lúta henni hvort sem þeim líki betur eða verr.

Þó svo að það sé grundvallarréttur hverrar stéttar að sækja sér kjarabætur með verkafallsrétti að vopni njóta lögreglumenn ekki slíks réttar, m.a. vegna öryggissjónarmiða og eðli starfsins. Nú er svo komið að lögreglumenn upplifa að þeir eru á krossgötum þar sem þeim virðast vera allar bjargir bannaðar til að sækja sér löngu verðskuldaða kjaraleiðréttingu. Við slíkar aðstæður erum við hrædd um hvað geti gerst í kjölfarið.

Undanfarnar vikur hefur samtakamáttur lögreglumanna aldrei verið sterkari og ljóst er að þeir muni ekki taka óréttlátri niðurstöðu gerðadóms þegjandi.

Virðingarfyllst
Stjórn Lögreglufélags Suðurnesja



« Opið bréf til Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar
Formaður bændasamtakanna á villigötum »

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Nýtt inn um lúguna

  • Jólasýning Þjóðleikhússins
  • Skömm Ríkisútvarpsins
  • Gráir fyrir járnum á Gaza
  • Sameiningartákn þjóðar
  • Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.
  • Afleit stærðfræði
  • Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
  • Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Facebook

Flokkar

  • Atvinnumál (18)

  • Aðsendar greinar (5)
  • Borgarskipulag (3)
  • Efnahagsm (7)
  • Efnahagsmál (59)
  • ferðaþjónusta (2)
  • Fjármál (23)
  • Fjölmiðlar (10)
  • Heilbrigðismál (18)
  • Húsnæðismál (5)
  • Húsvernd (2)
  • Ítalía (2)
  • Jafnréttismál (2)
  • Ljóð (1)
  • Lögfræði (7)
  • Óflokkað (15)
  • Rannsóknarskýrslan (3)
  • Rekstur (4)
  • Saga (8)
  • Samfélagið (82)
  • Sjávarútvegsmál (20)
  • Skólamál (3)
  • stjórnlagaþing (1)
  • Stjórnmál (146)
  • stjórnsýsla (9)
  • Sveitarstjórnarmál (5)
  • Umhverfismál (5)
  • Uncategorized (3)
  • Utanríkismál (14)
  • Viðskipti (36)
  • Eyjan að upphafssíðu
  • Auglýstu á Eyjunni

Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Lúgan

Undirvalmynd

  • Lúgan
Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar

Eyjan - Smáratorgi 3, Kópavogi - eyjan@eyjan.is

  • Um Eyjuna
  • Auglýsingar