Netfangið er: lugan@eyjan.is
Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.
Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Ég sendi þetta bréf til að lýsa fullkominni vanþóknun minni á vinnubrögðum Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar hvað varðar rekstur leikskóla hér í borg.
Þannig er mál með vexti að undirritaður á son sem er fæddur 29. ágúst 2009 og er því orðinn ríflega tveggja ára. Langt er um liðið síðan að við foreldrar hans sóttum um leikskólapláss fyrir drenginn á leikskólanum Dvergasteini. Reyndar er svo langt síðan að þá var ekki einu sinni búið að sameina leikskólana Dvergastein og Drafnarborg líkt og nú hefur verið gert. Leið svo og beið og ekkert gerðist í málunum. Var þetta vitanlega bagalegt fyrir okkur en ekki síst drenginn. Hann á eldri systur sem verið hefur á Dvergasteini fram til þess að skólar byrjuðu í haust en þá hóf sú stutta nám í Vesturbæjarskóla. Óneitanlega hefði það verið honum nokkur stuðningur að hafa stóru systur inni á sama leikskóla og hann hefði fengið inn á. Af því varð hins vegar ekki.
Foreldrar í limbói
Samkvæmt frétt á heimasíðu ykkar frá 12. apríl síðastliðnum kemur fram að stefnt sé að því að öll börn fædd árið 2009 fái boð um leikskólapláss á árinu. Eftir langa mæðu fengum við boð um að drengurinn fengi inni á leikskólanum. Ekki tók þá betra við. Ómögulegt virtist að setja niður hvenær sú skólaganga ætti að hefjast og enn leið tíminn. Fólk fór í sumarfrí eins og gengur og við foreldrarnir vorum í eintómu limbói um hvað myndi gerast að hausti. Hins vegar endaði með því að okkur var lofað fullum fetum að drengurinn kæmist inn 1. október.
Í samtölum okkar við leikskólastjóra kom fram að það sem tefði væri að flytja ætti viðbótarhúsnæði að skólanum og það tæki einhvern ógnartíma. Umrætt húsnæði var nýtt í fyrravetur sem útikennslustofur við einhvern grunnskóla borgarinnar og hefði því verið hægur vandinn að flytja þær byggingar strax að lokinni notkun síðastliðið vor. En nei! Húsin komu á staðinn 25. ágúst síðastliðinn, segi og skrifa.
Nú er það svo að haustin eru tími umskipta. Börn byrja í skólum, fólk skiptir um vettvang, byrjar í átaki í ræktinni og hvur veit hvað. Mér er óskiljanlegt hvernig á því stóð að ekki var búið að flytja umrætt húsnæði fyrr og ganga frá því þannig að eðlilegt vetrarstarf leikskólans gæti hafist af krafti í haust, nemendum, foreldrum og starfsmönnum til hagsbóta.
Svikin loforð
Á heimasíðu ykkar [http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-4362/7373_view-4991] kemur jafnframt fram að áætluð verklok við frágang á þessum útikennslustofum (eða viðbótarhúsnæði eða hvað þið viljið kalla það) séu fyrir miðjan september. Ég rita þessi orð mín 26. september.
Þá kemur að ástæðunni fyrir því að mér ofbýður gjörsamlega og settist niður til að rita þessar línur. Að morgni 21. september fékk barnsmóðir mín símtal frá leikskólastjóra Dvergasteins sem tjáði henni að framkvæmdum myndi ekki ljúka fyrr en 15. október næstkomandi. Nú vill svo til að við erum búin að segja upp plássi drengsins hjá dagforeldrinu sem hann hefur verið hjá, frá og með 1. október. Ég geri ráð fyrir því, eins og eftirspurn er eftir dagforeldrum í Vesturbæ Reykjavíkur, að dagforeldrið sé búin að fylla það pláss og gæti kannski hafa fyllt það margoft. Nú vill líka svo til að ég er heppinn og er í fullri vinnu. Sömu sögu má segja um barnsmóður mína. Það var mér því hulin ráðgáta hvernig leysa ætti það að engin gæsla stæði til boða fyrir snáðann minn fyrstu 15 daga októbermánaðar.
Ég fór því á stúfana og hringdi símtöl, bæði í kjörna fulltrúa og í starfsfólk Skóla- og frístundasviðs. Þegar langt var liðið á dag, og skap mitt farið að þykkna mjög, hafði samband við mig starfsmaður leikskólaskrifstofu og tjáði mér að allt benti til að áhyggjur mínar væru þarflausar. Kraftur yrði settur í frágang húsnæðisins og allt benti til að drengurinn fengi inn í byrjun október. Starfsmaðurinn myndi hins vegar hringja í mig á mánudagsmorgni til að skýra mér frá stöðunni.
Það símtal fékk ég svo nú í morgun. Starfsmaðurinn tjáði mér að eftir fund með framkvæmdaaðila væri því miður ljóst að ekki yrði hægt að standa við gefin loforð. Verkið myndi klárast eftir tvær vikur héðan í frá og því fengi drengurinn minn ekki leikskólapláss fyrr en í fyrsta lagi 10. október.
Ábyrgð borgarkerfisins
Mér er algjörlega misboðið. Reykjavík er ekki bara eitthvað fyrirtæki út í bæ sem hefur takmarkaðar skyldur við viðskiptavini sína. Sé búið að segja foreldrum að barnið þeirra verði tekið inn á leikskóla 1. október þá á það að standa. Annað er óboðlegt og ekki stjórnsýsla sem sæmir sveitarfélaginu.
Ég hef sjálfur nokkra reynslu af byggingaframkvæmdum. Ef að klára þarf einhver verk fyrir ákveðinn tíma og það virðist ekki ætla að ganga á þeim mannskap sem vinnur að verkinu þá er málið einfalt. Það er aukið við mannskapinn og menn vinna lengur og klára á tilsettum tíma.
Nú spyr ég: Hvar á sonur minn, og börn annarra foreldra sem eru í sömu stöðu og við foreldrar hans, að dvelja frá 1.-10. október? Ætlar starfsfólk skrifstofu Skóla- og frístundasviðs að koma heim til mín og passa hann á þessum tíma?