Þínar fréttir, þín skoðun






22.9 2011 - Ummæli ()

Um félagslíf og fleira í Menntaskólanum í Kópavogi


Höfundur: Aron Daði Þórisson - Nemandi við Menntaskólann í Kópavogi
Flokkur: Samfélagið, Skólamál, Uncategorized  

Nemendafélag Menntaskólans í Kópavogi hefur núna verið starfrækt í fjöldamörg ár, eða allt frá 1973 þegar skólinn var stofnaður.

Nemendafélagið hefur þurft að sæta þrengingar, bága vinnuaðstöðu, símaleysi, kennaraverkföll, byltingar og umturnanir á skólakerfinu og nemendaráð hefur staðist allar þessar raunir og gert ótrúlegustu hluti úr þessum og fleiri erfiðleikum þökk sé þrautseigju og dugnaði nemenda Menntaskólans í Kópavogi.

En nú stendur félagslíf skólans á hálum og þunnum ís. Nemendaráð skólans hefur staðnað í starfsháttum og er komið á hættulegt stig í þróunarsögu sinni.

Farið hefur verið frá lýðræðislegum háttum um opna nemendafundi þar sem allir fá tækifæri til að viðra skoðanir sínar og nú er svo statt að allar ákvarðanir eru teknar í gegnum formann nemendaráðs og flestir formenn nefnda innan ráðsins eru hræddir við að gera nokkurn skapaðan hlut án þess að hafa fengið leyfi og samþykki formannsins.

Barátta nemendafélags í skólamálum og umbótum kerfissins er horfin á braut vegna nemendaráðs sem að getur ekki séð neina aðra ábyrgð á sínum höndum en að sjá um böll.

Enda er það ástæðan fyrir að flestir eru þarna. Formannstaðan ásamt flestöllum nefndum var svo gott sem sjálfkjörin á seinasta skólaári þar sem að félagslegur áhugi nemenda á þessu dræma og innihaldslausa félagslífi skólans hefur aðeins farið minnkandi og minnkandi með árunum þar sem að engin stjórn hefur séð raunverulega ábyrgð nemendafélagsins í að skapa, mynda og halda á lofti skólaanda nemenda sem að á það svo til að týnast í áfangaskólum.

Nemendaráðið þetta ár sýndi merkilegan vilja á endurvakningu hefðanna með stórlegum endurbótum á félagslífi skólans en margt er enn ábótavant og þá hvað helst í stjórnarháttum stjórnarinnar sem að er stjórnuð af þéttum vinahóp með eftirfarandi afleiðingum:

Ég stofnaði persónulega síðu núna um daginn á félags- og samskiptavefnum facebook, sem bar nafnið MK Lífið, hún átti að vera vettvangur fyrir opna og gangrýna umræðu um félagslífið í skólanum, ásamt því að vera ein besta samtíma heimild nemenda um lífið í skólanum og tækifæri fyrir mig að auðga mannlífið í skólanum með hverju sem að ég fyndi á vegi mínum í skólanum, viðtöl, myndir, gamlar heimildir, sögur og annað efni sem mig langaði til þess að koma á framfæri.

Þessi síða sætti harðri gagnrýni frá nemendaráðinu sem að brást við á þann hátt, að átti að reka mig úr ljósmyndanefnd ef að ég birti myndir af félagslífinu inni á síðunni, ég mátti ekki undir neinum kringumstæðum nota nafnið MK. Nú stóð ég víst í beinni samkeppni við nmk.is og þar sem að þau höfðu eytt „morðfjár“ í að byggja upp þessa síðu var ég að eyðileggja allt sem þau höfðu unnið að, með því að stofna þessa facebook síðu.

Mér hafði verið hótað áður af formanni félagsins að ég yrði rekinn úr nemendaráði, en það var þá eftir að ég hafði verið eini ljósmyndarinn sem tók myndir á busaballi og ég hafði ekki tíma vegna, 5 daga vinnuhelgi og íbúðaflutninga til að setja myndirnar inná hörmulega webman kerfið sem NMK.is keyrir á.

Mér sárnaði þá og mér sárnaði núna.

Ég hafði stofnað fjölmiðil sem að ég vildi reka, en nemendafélagið vildi ekki sjá neinn annan en sinn eigin, þar sem Formaður fór með allt vald um innihald.

Ég taldi ekki vera spillingu innan félagsins, en mér höfðu borist margar fyrirspurnir um réttmæti þess að þegar nemendafélagið hafði ekki efni á að gera nemendaskirteini eða efni á ostum á ostakvöld, afhverju það hefði efni á Hummer Limo fyrir sig á busuninni og afhverju nemendafélagið væri að panta mat fyrir sig á fundum á kostnað nemendanna.

Ég bað um að fá að sjá fjárlög Nemendafélagsins. Það sætti enn harðari gagnrýni en ég hafði gert mér grein fyrir að það myndi gera, ég var sakaður um vantraust á nemendafélaginu, ásamt því að vera að ásaka þau um spillingu, mér var sagt að ég gæti bara fengið þennan 2000 kall til baka ef að mér væri svona annt um hann.

Umboðsmaður barna og talsmaður neytenda gáfu í ársbyrjun 2009 út leiðbeinandi reglur um neytendavernd barna. Þar er m.a. tekið fram í V. kafla um skóla og æskulýðsstarfssemi:

1. Framhaldsskólar

„Samningar sem að nemendafélag gerir til hagsbóta fyrir félagsmenn skulu vera gagnsæir og aðgengilegir nemendum…“

„Stjórnarmenn eða aðrir fulltrúar nemendafélaga mega ekki hagnast eða njóta nokkurra persónulegra hlunninda umfram aðra….“

Þessi vanþekking innan stjórnarinnar á stjórnarháttum nemendafélaga og algjört skeytingaleysi varðandi rétt og kröfur nemenda lýsti sér svo greinilega þegar Samband Íslenskra Framhaldsskólanema hélt aðalþing sitt um daginn þar sem meðlimir stjórnar NMK voru með öllu fjarverandi.

Þetta er sorglegur kafli í sögu nemendafélags með svo glæsta og virðingarverða fortíð, þar sem að lýðræðislegt nemendafélag hefur breyst í Alræðisstjórn líkt og var við lýði í kommúnistaríkjum hér áður fyrr, þar sem eini miðillinn var ríkis fjölmiðillin, allir voru jafnir nema sumir voru bara meira jafnari en aðrir og öll framþróun og umbætur að hálfu ríkissins var aðeins yfirborðsleg, á meðan þegnarnir fengu að gjalda fyrir það á silfurfati stjórnarinnar.

Ég vona að þessi grein vekji einhver nemendafélög, og þá sérstaklega mitt eigið til þess að stíga fram og taka sig á, spillt fólk er ekki slæmt fólk, það bara týnist í heimi sem því líkar alveg óhóflega vel við.



« Þegar peningarnir tala, þá þagnar skynsemin
Opið bréf til Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar »

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Nýtt inn um lúguna

  • Jólasýning Þjóðleikhússins
  • Skömm Ríkisútvarpsins
  • Gráir fyrir járnum á Gaza
  • Sameiningartákn þjóðar
  • Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.
  • Afleit stærðfræði
  • Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
  • Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Facebook

Flokkar

  • Atvinnumál (18)

  • Aðsendar greinar (5)
  • Borgarskipulag (3)
  • Efnahagsm (7)
  • Efnahagsmál (59)
  • ferðaþjónusta (2)
  • Fjármál (23)
  • Fjölmiðlar (10)
  • Heilbrigðismál (18)
  • Húsnæðismál (5)
  • Húsvernd (2)
  • Ítalía (2)
  • Jafnréttismál (2)
  • Ljóð (1)
  • Lögfræði (7)
  • Óflokkað (15)
  • Rannsóknarskýrslan (3)
  • Rekstur (4)
  • Saga (8)
  • Samfélagið (82)
  • Sjávarútvegsmál (20)
  • Skólamál (3)
  • stjórnlagaþing (1)
  • Stjórnmál (146)
  • stjórnsýsla (9)
  • Sveitarstjórnarmál (5)
  • Umhverfismál (5)
  • Uncategorized (3)
  • Utanríkismál (14)
  • Viðskipti (36)
  • Eyjan að upphafssíðu
  • Auglýstu á Eyjunni

Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Lúgan

Undirvalmynd

  • Lúgan
Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar

Eyjan - Smáratorgi 3, Kópavogi - eyjan@eyjan.is

  • Um Eyjuna
  • Auglýsingar