Þínar fréttir, þín skoðun






12.9 2011 - Ummæli ()

Þegar peningarnir tala, þá þagnar skynsemin

Höfundur: Árni Gunnarsson - fyrrverandi alþingismaður.
Flokkur: Atvinnumál, Fjármál, Samfélagið, Stjórnmál, Viðskipti  

Erlendur maður hefur óskað eftir því, að fá keypta jörðina Grímsstaði á Fjöllum, eða um 100 ferkílómetra af Íslandi. Á jörðinni ætlar hann að reisa stórt fimm stjörnu hótel og gera 18 holu golfvöll. Til þess arna hefðu honum nægt 2-3 ferkílómetrar. Engu breytir af hvaða þjóðerni þessi maður er, þegar ýmsar spurningar vakna um síðferðilegan og lagalegan rétt til landsölu af þessu tagi.

Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar, að það sé nánast heilög skylda minnar kynslóðar, þeirrar næstu og þarnæstu og allra komandi kynslóða, að varðveita landið okkar óspillt og heilt svo við megum afhenda það börnum, barnabörnum og afkomendum öllum, helst betur umgengið og ræktað en þegar við tókum við því. Landið er okkar arfur frá fyrri kynslóðum. Þessum arfi eigum við að skila áfram, án þess að af landinu hafi verið sneiddir stórir hlutar og þeir afhentir erlendum mönnum.

Í þessari umræðu skaðar ekki að minna á kveðskap séra Björns Halldórssonar, prests í Sauðlauksdal, sem orti:

Ég skal þarfur þrífa
þetta gestaherbergi,
eljan hvergi hlífa
sem heimsins góður borgari.
Einhver kemur eftir mig sem hlýtur.
Bið ég honum blessunar,
þá bústaðar
minn nár í moldu nýtur.

Um aldir hafa erlendir menn, jafnvel konungbornir, viljað eignast landið okkar eða hluta þess. Íslenskir menn stóðu gegn því og fengu forðað landsölu. Fyrir þeirra verk búum við enn í okkar eigin landi. Með sölu á stórum hlutum landsins, erum við að rýra arfinn, sem við fengum í hendur. – Landsala af þessu tagi á ekkert sérstaklega skylt við víðsýni né alþjóðlegan og heimsborgaralegan hugsunarhátt, og andstaðan á heldur ekkert skylt við þröngsýni né fólsku gangvart erlendum mönnum. Þetta er og verður tilfinningamál.Við leggjum misjafnan skilning í þjóðareign á landi, sem eitt sinn var helsta baráttumál Alþýðuflokksins.   Umræðan má ekki mótast af þeim gamla og nýja sannleika, að þegar peningarnir tala, þá þagni skynsemin.

Við Íslendingar ættum að kynna okkur sjónarmið Dana eftir að þeir hafa misst gríðarlega stórt og verðmætt land í hendur nágranna sinna, Þjóðverja. Síðustu 15 árin hef ég fylgst vel með þróun mála í Ungverjalandi. Þar hafa Þjóðverjar og Austurríkismenn keypt stór landsvæði og notað þau í margvíslegum tilgangi, m.a. til vínræktar, framleiðslu á hveiti og höfrum og til uppbyggingar á hótelum og hestabúgörðum. Arðurinn af þessari starfsemi hefur að óverulegu leyti runnið til ungversku þjóðarinnar. Á mörgum svæðum er Ungverjar orðnir “minniháttar borgarar” eða “vinnulýður” og margvísleg vandamál hafa fylgt í kjölfar landeignar erlendra manna, sem í ýmsum tilvikum hafa staðið gegn eðlilegri uppbyggingu í landinu. Ungverjar hafa að vissu leyti misst tökin á þróun mála í eigin landi. Og enginn skal telja mér trú um, að íslenskur lagarammi sé svo traustur, að íslensk stjórnvöld geti ráðið ferðinni þegar erlendir landeigendur vilja nýta jarðeignir sínar til einhverra þeirra verkefna, sem okkur geðjast ekki að.

Og svo spyr ég vitanlega: Af hverju lítum við ekki landið okkar sömu augum og fiskinn í sjónum og náttúruauðlindirnar, sem við viljum festa í stjórnarskrá að sé eign þjóðarinnar um aldur og ævi?

Mig skiptir einu hvort það er Kínverji, Bandaríkjamaður, Færeyingur eða Saudi Arabi, sem vill kaupa Grímsstaði á Fjöllum eða aðrar stórjarðir á Íslandi. En af því að hér á í hlut Kínverji, þá tel ég rétt að skýra frá því, að ég ber mikla virðingu fyrir kínversku þjóðinni, sögu hennar, menningu og vísindum og því stórbrotna afreki að fæða og klæða 1,3 miljarða manna. Og kannski líður ekki á löngu þar til kínverski dollarinn verður grunneining gjaldeyrisviðskipta í heiminum. Völd Kínverja og áhrif fara dagvaxandi.

Mér finnst það mikils virði, að þessi kínverski maður skuli vilja fjárfesta í hóteli og golfvelli á einu hæsta byggða bóli á Íslandi. Og ef hann er þeirrar skoðunar (sem er auðvitað hárrétt) að það sé arðbært að fjárfesta í íslenskri ferðamennsku, og að hann beri hlýjan hug til íslensku þjóðarinnar, þá ætti hann að láta sér nægja ríflegt land undir hótel og golfvöll, en ekki heila 100 ferkílómetra. Með því kæmi hann í veg fyrir deilur og tilfinningalegt angur og greiddi götu þess, að áfram ríktu eðlileg og góð samskipti fjömennasta ríkis jarðar og eins þess fámennasta. –  Og svo þessi spurning: Er líklegt, að íslenskur fjárfestir fengi að kaupa 100 ferkílómetra af kínversku landi?



« Ekki þér samboðið, Steingrímur!
Um félagslíf og fleira í Menntaskólanum í Kópavogi »

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Nýtt inn um lúguna

  • Jólasýning Þjóðleikhússins
  • Skömm Ríkisútvarpsins
  • Gráir fyrir járnum á Gaza
  • Sameiningartákn þjóðar
  • Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.
  • Afleit stærðfræði
  • Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
  • Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Facebook

Flokkar

  • Atvinnumál (18)

  • Aðsendar greinar (5)
  • Borgarskipulag (3)
  • Efnahagsm (7)
  • Efnahagsmál (59)
  • ferðaþjónusta (2)
  • Fjármál (23)
  • Fjölmiðlar (10)
  • Heilbrigðismál (18)
  • Húsnæðismál (5)
  • Húsvernd (2)
  • Ítalía (2)
  • Jafnréttismál (2)
  • Ljóð (1)
  • Lögfræði (7)
  • Óflokkað (15)
  • Rannsóknarskýrslan (3)
  • Rekstur (4)
  • Saga (8)
  • Samfélagið (82)
  • Sjávarútvegsmál (20)
  • Skólamál (3)
  • stjórnlagaþing (1)
  • Stjórnmál (146)
  • stjórnsýsla (9)
  • Sveitarstjórnarmál (5)
  • Umhverfismál (5)
  • Uncategorized (3)
  • Utanríkismál (14)
  • Viðskipti (36)
  • Eyjan að upphafssíðu
  • Auglýstu á Eyjunni

Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Lúgan

Undirvalmynd

  • Lúgan
Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar

Eyjan - Smáratorgi 3, Kópavogi - eyjan@eyjan.is

  • Um Eyjuna
  • Auglýsingar