Netfangið er: lugan@eyjan.is
Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.
Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Hæstiréttur Íslands hefur ógilt kosningar til stjórnlagaþings. Þrátt fyrir það geysast menn um ritvöllinn og hvar sem þeir komast í kallfæri við almenning reyna þeir að grafa undan trúverðugleika og þar með réttmæti niðurstöðu hæstaréttar.
Þarna fara fremstir, ritstjórar blaða, stjórnmálafræðingar, lögfræðingar, alþingismenn og ráðherrar að ógleymdum þeim sem kjöri náðu í þessari ólögmætu kosningu. Þeir sem öðrum fremur á að gera kröfu til að fara fyrir málefnalegri umræðu um málið hafa þar með fallið í þá gryfju að lítilsvirða Hæstarétt Íslands og segja hann handbendi afla sem stjórnað sé af pólitískum hagsmunaklíkum.
Þó flestir séu að verða sammála um að reglur um skipan dómstóla séu ekki góðar, breytir það ekki núverandi skipan þeirra.
Rétt er líka að menn hugleiði hvort það væri traustur æðsti dómstóll Íslands sem léti undan þeirri orrahríð sem nú er að honum gerð vegna kosninganna til stjórnlagaþings?
Væri hann ekki þá fyrst að eltast við duttlunga og sérhagsmuni? Væri hann ekki þá endanlega rúinn því trausti sem dómstólar þurfa að standa undir? Þá er sú spurning afar áleitin hvort þeir einstaklingar sem kjörnir voru til setu á stjórnlagaþingi í hinni ólögmætu kosningu og verst eiga með að virða niðurstöðu Hæstaréttar séu vel til þess fallnir að leggja til breytingar á stjórnskipun landsins.