Þínar fréttir, þín skoðun






18.1 2011 - Ummæli ()

Fjármagnseigendur vs skuldarar

Höfundur: Sigurður K. Pálsson - Markaðsstjóri
Flokkur: Atvinnumál, Efnahagsmál, Jafnréttismál, Stjórnmál, stjórnsýsla, Viðskipti  

Leikurinn um peningana heldur áfram, fjármagnseigendur á móti skuldurum.  Þó nokkru áður en leikurinn hófst var ljóst að lið fjármagnseigenda var eingöngu skipað atvinnumönnum. Leikfléttur fjármagnseigenda voru gríðarlega flóknar, báru nöfn eins og skortstöður, afleiður, vafningar og fl. Skuldarar þekktu ekki þessar nýju leikfléttur en gerðu ráð fyrir því að leikurinn færi heiðarlega fram, enda ástæðulaust annað þar sem settur var dómari á leikinn sem talin var hlutlaus.

Nú er komin hálfleikur í baráttu þessara liða. Staðan er 4 -1 fjármagnseigendum í hag. Leikurinn hefur þótt mjög ójafn í fyrri hálfleik enda dómari leiksins mjög hlutdrægur og dæmt hvað eftir annað vítaspyrnur á skuldara.

Fyrsta vítaspyrnan sem fjármagnseigendur fengu á silfurfati kom þegar ríkisstjórnin ákvað að tryggja 100% innistæður fjármagnseigenda í bönkum, fljótlega þar á eftir fengu þeir aðra vítaspyrnu eða þegar ríkisstjórnin ákvað að leggja 400 milljarða af skattfé almennings inn á peningamarkaðssjóði fjármagnseigenda. Þriðja vítaspyrnan kom svo við skuldauppgjör á milli gömlu og nýju bankanna þegar ákveðið var afsláttur af lánum sem nýju bankarnir fengu var eingöngu ætlaður til að hífa upp eigið fé nýju  bankanna í stað þess að nota til leiðréttingar á skuldum almennings.

Skuldarar náðu að svara með einu marki í fyrri hálfleik. Til þess að fá markið dæmt löglegt þurftu skuldarar að fara í flókið kæruferli sem endaði með úrskurði  æðstu dómstóla. Hæstiréttur tók völdin af dómaranum og dæmdi gengistryggð lán ólögleg. Staðan orðin 3-1

Fjármagnseigendur fengu síðan dæmda fjórðu vítaspyrnuna en þar sýndi dómarinn að hann var í raun 12 leikmaður þeirra.  Skuldarar höfðu sótt mjög í sig veðrið og voru í stórsókn inni í vítateig fjármagnseigenda þegar boltinn hrökk í hendi liðsmans skuldara. Dómarinn flautaði og skundaði alla leið til baka inn í vítateig skuldara og benti á vítapunktinn.  Þarna varð vaxtadómurinn  að veruleika. Ótrúlegur dómur sem gefur fjármagnseigendum rétt til að reikna vexti mörg á aftur í tímann, einnig á þá sem eru búnir að greiða upp sínar skuldir.

Á undanförnum vikum og misserum hafa margir komið að málum og reynt að sína fram á að dómarar leiksins hafa verið mjög hlutdrægir, öll vafaatriði eru dæmd fjármagnseigendum í hag.  Á þessa aðila hefur verið lítið sem ekkert hlustað. Spurning hvort ekki sé orðið tímabært að skipta um dómara.

Í öllu falli verður fróðlegt að fylgjast með seinni hálfleik og spennandi að sjá hvort leikurinn jafnist. Verður dómarinn jafn hlutdrægur og áður eða mætir nýr dómari til leiks og dæmir af sanngirni í stað hlutdrægni eins og í fyrri hálfleik?



« Tveir samningar út í bláinn
Ríkisstyrkurinn »

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Nýtt inn um lúguna

  • Jólasýning Þjóðleikhússins
  • Skömm Ríkisútvarpsins
  • Gráir fyrir járnum á Gaza
  • Sameiningartákn þjóðar
  • Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.
  • Afleit stærðfræði
  • Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
  • Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Facebook

Flokkar

  • Atvinnumál (18)

  • Aðsendar greinar (5)
  • Borgarskipulag (3)
  • Efnahagsm (7)
  • Efnahagsmál (59)
  • ferðaþjónusta (2)
  • Fjármál (23)
  • Fjölmiðlar (10)
  • Heilbrigðismál (18)
  • Húsnæðismál (5)
  • Húsvernd (2)
  • Ítalía (2)
  • Jafnréttismál (2)
  • Ljóð (1)
  • Lögfræði (7)
  • Óflokkað (15)
  • Rannsóknarskýrslan (3)
  • Rekstur (4)
  • Saga (8)
  • Samfélagið (82)
  • Sjávarútvegsmál (20)
  • Skólamál (3)
  • stjórnlagaþing (1)
  • Stjórnmál (146)
  • stjórnsýsla (9)
  • Sveitarstjórnarmál (5)
  • Umhverfismál (5)
  • Uncategorized (3)
  • Utanríkismál (14)
  • Viðskipti (36)
  • Eyjan að upphafssíðu
  • Auglýstu á Eyjunni

Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Lúgan

Undirvalmynd

  • Lúgan
Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar

Eyjan - Smáratorgi 3, Kópavogi - eyjan@eyjan.is

  • Um Eyjuna
  • Auglýsingar