Þínar fréttir, þín skoðun






19.11 2010 - Ummæli ()

Áskorun til Björgólfs Thors Björgólfssonar

Höfundur: Ólafur Kristinsson - Héraðsdómslögmaður og fyrrverandi hluthafi í Landsbanka Íslands og Straum Burðarás
Flokkur: Efnahagsmál, Fjármál, Lögfræði, Rekstur, Viðskipti  

Nýlega skrifaði ég grein í Viðskiptablaðið um eignarhald og lánveitingar Björgólfs Thors Björgólfssonar í Landsbanka Íslands (LÍ). Ég var hluthafi í LÍ og tapaði fjármunum á falli hans líkt og hinir 27.000 hluthafar bankans. Í grein minni rakti ég þau sjónarmið mín að ég teldi ýmislegt benda til þess að Björgólfur Thor hafi beitt hluthafa bankans blekkingum, í því skyni að komast hjá því að vera skilgreindur venslaður aðili í bankanum. Þannig hafi lánveitingar til hans og tengdra aðila í raun verið langt umfram lögbundnar heimildir. Á annað hundrað manns hafa lýst yfir áhuga sínum á því að hefja undirbúning á skaðabótamáli á hendur Björgólfi Thor.

Ég skora á Björgólf Thor að stíga fram og svara því hvort hann telji að lánveitingar hans, sem nema líklega um 50% af CAD eigið fé bankans hafi verið lögmætar og hvort hann telji eðlilegt að eignarhald starfsmanna hafi verið honum ótengt. Með sama hætti er nauðsynlegt að upplýst verði með fullnægjandi hætti hvernig eignarhaldi samstarfsmanna Björgólfs í LÍ var raunverulega háttað, þ.m.t. hverjir þessir samstarfsmenn voru og hver fjármagnaði bréfin. Áskorun mín til Björgólfs er einnig sú að hann hafi frumkvæði að því að bæta skaða hluthafa bankans með því að leggja fram eign sína í Actavis. Þannig væri hugsanlega hægt að ná sátt í málinu og forðast aðkomu dómstóla.

Af hverju skiptir skilgreining Björgólfs Thors sem venslaðs aðila LÍ máli?

Við mat á því hvort að skaðabótamál sé hugsanlegt á hendur Björgólfi Thor þá er það lykilatriði að meta hvort eignarharld nánustu samstarfsmanna hans hefði ekki átt að skilgreinast undir hans stjórn og hvort lánveitingar til hans hafi verið umfram lögbundnar heimildir. Líkt og ég rakti í grein minni í Viðskiptablaðinu þá tel ég svo vera. Umrædd ályktun byggir m.a. á því að þessir ónefndu starfsmenn þáðu hjá honum laun í gegnum Samson eignarhaldsfélag og Novator og telja má útilokað að þeir hefðu í einhverjum tilvikum beitt atkvæðisrétti sínum gegn vilja Björgólfs Thors.

Við skilgeiningu Björgólfs sem venslaðs aðila líkt og eðlilegt hefði verið þá væru allar lánveitingar hans og tengdra aðila opinberar í ársreikningum bankans og hagsmunaaðilar þannig meðvitaðir um þessa útlánaáhættu. Það var hinsvegar ekki gert. Hvergi var getið um þessi lán og líkt og ég hef áður bent á eru lán til venslaðra aðila í reikningum LÍ fyrir árið 2007 aðeins um 10 milljarðar króna. Í þessu samhengi má nefna að lán til Björgólfs Thors og tengdra aðila voru á bilinu 50-150 milljarðar króna ef marka má Rannsóknarskýrslu Alþingis. Sé horft á umræddar lánveitingar Björgólfs í samhengi við efnahag bankans má sjá hversu miklu máli það skipti fyrir matsfyrirtæki, hluthafa, greiningadeildir og skuldabréfaeigendur að hafa rétta stöðu um útlánaáhættu til eigenda sinna.

Skaðabætur sóttar til Björgólfs Thors

Ef vilji hluthafa og kröfuhafa stendur til þess að höfða skaðabótamál á hendur Björgólfi vegna ólögmætra lánveitinga til hans og ranglega skilgreindum eignarhlut lýsi ég hér með yfir vilja mínum til að koma að undirbúningi slíks máls. Nýlegt skuldauppgjör Björgólfs opinberar framtíðarmöguleika hans á verðmætum sem tengjast væntanlegri sölu á lyfjafyrirtækinu Actavis. Fram hefur komið í fjölmiðlum að gangi áætlanir félagsins eftir geti um 140 þúsund milljónir króna runnið í vasa Björgólfs. Eftir því sem best má skilja, rennur ekkert af þeim fjármunum til greiðslu skulda eða persónulegra ábyrgða hans. Hluthafar og aðrir kröfuhafar hljóta því að horfa til þeirra verðmæta þegar mat er lagt á grundvöll skaðabótamáls.

Þögn og aðgerðaleysi Slitastjórnar Landsbanka Íslands

Lítið hefur farið fyrir Slitastjórn LÍ kjölfar bankahrunsins. Einstaka sinnum stíga þeir þó fram og segjast vera að rannsaka ýmis mál. Aðgerðir virðast þó víðs fjarri. Skaði hluthafa Landsbanka Íslands af vafasamri útlánastefnu stjórnenda hans er mikill og um það verður ekki deilt. Um 27.000 hluthafar töpuðu allri eign sinni við fall bankans. Nú hljótum við hluthafar að krefjast skýringa frá Björgólfi Thor sjálfum, FME og Slitastjórn LÍ. Líkt og í fyrri skrifum mínum ítreka ég að markmið mitt er ekki að kveða endanlega upp úr um sekt eða sakleysi Björgólfs Thors. Það er hlutverk dómstóla. Ég vill hinsvegar stuðla að umræðu um þetta mál,fá fram frekari skýringar og reyna ná sátt við Björgólf Thor til að forðast atbeina dómstóla.



« Hvað þarf að gerast?
Viðskiptahöft eða fjármálaóstöðugleiki – stefna Sjálfstæðisflokksins í peningamálum? »

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Nýtt inn um lúguna

  • Jólasýning Þjóðleikhússins
  • Skömm Ríkisútvarpsins
  • Gráir fyrir járnum á Gaza
  • Sameiningartákn þjóðar
  • Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.
  • Afleit stærðfræði
  • Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
  • Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Facebook

Flokkar

  • Atvinnumál (18)

  • Aðsendar greinar (5)
  • Borgarskipulag (3)
  • Efnahagsm (7)
  • Efnahagsmál (59)
  • ferðaþjónusta (2)
  • Fjármál (23)
  • Fjölmiðlar (10)
  • Heilbrigðismál (18)
  • Húsnæðismál (5)
  • Húsvernd (2)
  • Ítalía (2)
  • Jafnréttismál (2)
  • Ljóð (1)
  • Lögfræði (7)
  • Óflokkað (15)
  • Rannsóknarskýrslan (3)
  • Rekstur (4)
  • Saga (8)
  • Samfélagið (82)
  • Sjávarútvegsmál (20)
  • Skólamál (3)
  • stjórnlagaþing (1)
  • Stjórnmál (146)
  • stjórnsýsla (9)
  • Sveitarstjórnarmál (5)
  • Umhverfismál (5)
  • Uncategorized (3)
  • Utanríkismál (14)
  • Viðskipti (36)
  • Eyjan að upphafssíðu
  • Auglýstu á Eyjunni

Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Lúgan

Undirvalmynd

  • Lúgan
Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar

Eyjan - Smáratorgi 3, Kópavogi - eyjan@eyjan.is

  • Um Eyjuna
  • Auglýsingar