Netfangið er: lugan@eyjan.is
Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.
Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Þegar hangið er á fölsku nótunum verður engin músík.
Dag eftir dag keppast nú kröfueigendur/seljendur húsnæðislána á frummarkaði og þeirra áhangendur hver sem betur getur um að telja almenningi trú um að veruleg almenn niðurfærsla verðbótaþáttar höfuðstóls húsnæðislána sé vond aðferðafræði, með vondar lausnir og vondar aðgerðir, sem muni koma í bakið á þjóð og skattgreiðendum strax í gær.
Þessi samkór hollvina okurs í smásölu er einróma skakk og skjön gegn skuldunautum/ kaupendum húsnæðislána; því miður rammfalskur kór og stundum óhljóð ein, sbr, t.d. leiðara Fréttablaðsins þann, 14. okt. 2010, þar sem ritstjóri tíundar skilmerkilega allar fölsku nóturnar í þessum háværa samkór uns slær þeim öllum saman eitt og segir langbest þannig.
Um hvað snýst málið?
Hrunið hrinti af stað neyðarlögum. Og almennri leiðréttingu til innistæðueigenda, sem betur fer. Hrunið hrinti af stað gengishruni krónu með óðaverðbólgu. Þá snarhækkuðu húsnæðislánin sjálfkrafa yfir tíma: Strax höfuðstóll gengistryggðu lánanna, en höfuðstóll verðtryggðu lánanna byrjaði að hlaða á sig verðbótaþætti í samræmi við vísitölu og óðaverðbólgu.
Verðbótaþáttur verðtryggðu húsnæðislánanna hefur síðan hlaðist á höfuðstól þessara lána jafnt og þétt (og: mun gera jafnt og þétt út lánstíma lánanna, með vöxtum og vaxtavöxtum og vöxtum líka af þeim!) Samhliða hefur markaðsvirði húseigna lækkað verulega, svo eigið fé flestra heimila (mismunur eigna og skulda) mun fyrirsjáanlega að óbreyttu brenna upp og er nú þegar brunnið upp hjá um fimmtungi heimila, sbr. fréttir.
Snargölluð vara!
Ritsstjóri Fréttablaðsins gerir sér enga grein fyrir neinu af þessu fremur en þau sem nú kyrja óhljóð sín í áðurnefndum samkór seljenda þessara endemis endemis bull-lána, sem hér á landi eru enn nefnd húsnæðislán. Kristaltært öfugmæli alls staðar í nálægum löndum.
Söluvara sem er í raun og sann sérsniðin sem ævilangir þrældómsfjötrar hálsi kaupendanna – og herðast þessir fjötrar þræl við hverja einustu mælingu á verðbólgu hérlendis og mælingum á verðbólgu erlendis (sem þar endurspeglast hér, í hærra innkaupsverði vöru og þjónustu frá útlöndum í erlendri mynt, margfaldað með gengi krónu) sem samtals hækkar jafnt og þétt verðbótaþátt verðtryggðra lána, og þar með höfuðstól þessara endemis lána, uppreiknaður mánaðarlega, og þá skellt á allan uppreiknaðan höfuðstólinn nafnvöxtum háum, og breytilegum, að geðþótta seljenda.
Um hvað er beðið?
Það er beðið um 18% niðurfellingu á þeim hluta verðbótaþáttar höfuðstóls sem orðið hefur til á síðustu tveimur árum, vegna hruns, gengisfalls og verðbólgu.
Ef spurt af hverju, er það til þess að bjarga heimilunum, eftirspurn, störfum og skattstofnum, markaðsviðskiptum, og draga þar með úr fjölda gjaldþrota, og landflótta, einstaklinga og fjölskyldna.
Það er sem sagt beðið um að skilað sé til baka umtalsvert, verðbótahluta höfuðstóls, sem vítisvél verðtryggingar hefur hlaðið upp frá hruni bankanna fyrir tveimur árum ; hlaðið ofan á upphaflega umsaminn höfuðstól húsnæðislána heimilanna.
Og sem annað vers: Stöðva sjálfvirka hækkun verðbótaþáttarins, að minnsta kosti á meðan unnið er að endurskoðun á skipulagi og kjörum húsnæðislána.
Rammfalskt best?
Þó skuldafjötrar hafi sennilega fargað fleiri Íslendingum en öll heilbrigðisvandamál til samans er það ekki ástæða til að heykjast á að gera það sem rétt er að gera.
Samkór seljenda þarf að muna að leikritið sem ritstjóri Fréttablaðsins nefnir í leiðara sínum 14. okt. 2010 og nefnir Falskar vonir, er þekkt leikrit hér og erlendis, þó engu detti í hug annars staðar en hér að kyrja einum kór allar fölsku nóturnar sínar saman á einum stað.
Landsmenn öll auðvitað enn víkingar og skáld þó barður sé þrællinn og máti sig fatastíl feitra þjóna.
Blikkandi rauð ljós!
Landsmönnum er vel kunnugt um hver fjármagna, skrifa og leikstýra leikritinu sem ritstjóri nefnir, og maður nefndur JB segir á eyjunni í gær í glöggri athugasemd við frétt af ógna- og furðuviðtali við Guðmund Ólafsson, hagfræðing, hafi kallað „helvíti yfir tugþúsundir einstaklinga í þessu landi.“
Fúkyrt ekki til fyrirmyndar en ef rétt hjá JB að 63% lána séu nú í flokki 90 daga vanskila og eldri, komast kröfueigendur/seljendur ekki undan því að horfast í augu við þann rekstrarvanda.
Svo afdráttarlaus mæling á heilbrigði endurspeglar sjálfkrafa samsvarandi heilbrigði kaupenda; speglar tekju- gjalda- eigna- skulda- og eiginfjár-sjúkdóma tugþúsunda viðskiptavina/kaupenda húsnæðislána, sem og jafnframt er hryllingssaga, sem hvorki ofstopaþröngsýni né græðgi né sérviskuhagfræði, fá lagfært, hvort sem líkar betur eða verr.
Stjórnunarþáttur: Taktísk stýring?
Seljendur leggja nú mjög upp úr að etja kaupendum saman innbyrðis undir kórsöngnum; og er ógeðfelld tegund af hörmulegu samfélagslegu einelti úr hendi frumseljenda þessarar snargölluðu fjármálavöru sem enn er nefnd húsnæðislán.
Ríkisstjórn okkar allra gerir þó samt enn sitt til þess að halda kleinunni – og hallast nú bakborða enn að því að: a) efnahagur fyrirtækis, lánasjóðs og lífeyrissjóðs, sé eilíft heilagri helgidómur en efnahagur heimilis, og b) brjóta vívitandi á landsmönnum, jafnræðisreglu og stjórnarskrá.
Spurt er: Hvað á að gera?
Svar: Hvort sem um er að ræða skort á samúð eða skilning eða um ásetning er að ræða, er best að fylgja ráði prófessor Stieglitz, nóbelsverðlaunahafa í hagfræði, sem ráðlagði og rökstuddi almenna niðurfærslu höfuðstóls húsnæðislána; (sem og lesa lærða grein eftir mig á lúgu-eyju). Niðurfærslan sé næg, svo skipti máli í hagkerfinu, ekki síst til bjargar fjármálaþjónustu sem atvinnugrein, frá stærri vanda; nú ekki vegna skorts á gjaldeyri, heldur vegna skorts á trausti og viðskiptavild viðskiptavina.