Þínar fréttir, þín skoðun






10.11 2010 - Ummæli ()

Ný samvinnuhreyfing: Leið úr ánauð

Höfundur: Jón Karl Stefánsson - Framkvæmdarstjóri
Flokkur: Atvinnumál, Efnahagsmál, Rekstur, Samfélagið, Viðskipti  

Samfélagið sem við búum í og hagkerfið sem við notum til að deila gæðum þess er stéttskipt, bæði hvað varðar áhrifasvið ákvarðana og það hvernig afrakstri framleiðslunnar er skipt. Þetta er augljóst í öllum hefðbundum fyrirtækjum, bæði þeim sem eru í einkaeign og þeirra sem eru í eigu hins opinbera. Það stjórnarfyrirkomulag sem við erum alin upp við og þekkjum best er stigveldisstjórn þar sem skipanir fara einungis í eina átt; frá „yfirmönnum“ til „undirmanna“. Því neðar sem hver og einn er staðsettur í þessum pýramída, þeim minna vægi hafa hagsmunir, vilji og ákvarðanir hans eða hennar. Undirmönnum ber skylda að hlýða skipunum yfirmanna sinna, ekki öfugt.

Útfærslan er mismunandi eftir því hvort fyrirtæki eru einkarekin eða í eigu hins opinbera, en niðurstaðan er hin sama. Í einkafyrirtækjum eru fjármagnseigendurnir sjálfir á toppnum í öllum nema algjörum undantekningartilvikum. Þeir hafa þá stöðu að þurfa ekki að taka við skipunum og geta tekið stærri ákvarðanir og mótað stefnu, markmið o.s.frv. Um leið njóta þessir sömu einstaklingar efnahagslegra yfirburða með því að hafa einkarétt á ráðstöfun hagnaðar auk þess að hafa möguleika á því að ákveða laun sín eða þóknun sjálf eða sjálfir. Undantekningar á frelsi eigendanna til að ákveða þessi atriði eftir eigin höfði eru einkum tengdar því hvort þær stangist á við opinber lög en einnig geta fjármagnseigendurnir lent í vandræðum ef undirmenn þeirra geta náð samstöðu til að neita að veita þeim vinnuafl sitt og knýja þá til að samþykkja einhverjar tillögur.

Ágreiningur fjármagnseigenda við hið opinbera er hinsvegar ekki endilega svo alvarlegur, enda tryggja landslög og stjórnarskrár ríkja, til dæmis Íslands, vald fjármagnseigenda. Einkarétturinn er friðhelgur samkvæmt stjórnarskrá og ríkið getur beitt löggæslu til að verja fjármagnseigendur ef svo stendur á. Þar sem þetta fyrirkomulag er á margan hátt grundvöllurinn fyrir stjórnun alls samfélagsins, ná umsvif fjármagnseigenda langt út fyrir fyrirtækið, eða fyrirtækin sem þeir eiga. Þeir geta, eins og undirmenn, bundist samtökum og unnið með öðrum fjármagnseigendum til að ná fram sameiginlegum markmiðum og sigrast á sameiginlegum hindrunum. Þetta er einmitt tilgangur félaga eins og Samtaka atvinnulífsins, Vinnuveitendasambandsins o.fl. Fjármagnseigendur hafa auk þess yfirburðastöðu miðað við eignalaust fólk til að hafa áhrif á þróun stjórnmála í samfélaginu. Hægt er að fjármagna þá stjórnmálamenn eða flokka sem hafa stefnu sem hentar hagsmunum þeirra, notað hluta af rástöfunartekjum fyrirtækisins til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri í gegnum fjórða valdið og kaupa mikilvægar samfélagsstofnanir.

Það sem vegur þyngst er að auðvaldið og ríkisvaldið eru ekki þeir andstæðingar sem oft er látið af; þvert á móti. Ríkisvaldið, sem við fengum í arf frá Danmörku, varð til út frá tilraunum fjármagnseigenda, aðalsins og kirkjunnar til að koma sér saman um leikreglur um hvað ætti að gera ef hagsmunaárekstrar yrðu á milli einhverra úr þessum hópum. Konur og eignarlausir karlmenn fengu hvorki að taka þátt í að móta lagaumhvefi ríkisins né heldur að kjósa lengst framan að. Skipulag ríkisins var því hannað af eignafólki, aðli og klerkum eftir hagsmunum þeirra sjálfra og þær stofnanir sem ríkisvaldið tók að sér voru þessu marki brenndar. Þetta á við um allar opinberar stofnanir, hvort sem það er almenna skólakerfið, lögregluna o.s.frv. Þegar eignalaust fólk fékk loks atkvæðisrétt voru grunnstoðir ríkisins þegar komnar upp, í þágu auðvalds, kirkju og aðals.

Grunnskipulag ríkisstofnanna er samskonar hvar sem litið er. Ákvörðunartaka er þar eins lagskipt og í einkafyrirtækum, undirmönnum ber að hlýða yfirmönnum og sætta sig við lægri sneið af kökunni en yfirmenn. Fyrir venjulega starfsmenn eru ríkisfyrirtæki nánast nákvæmlega eins og einkafyrirtæki. Starfsmenn í lægstu þrepum stigveldisins eru þar jafn valdalitlir, hafa jafn ítil áhrif á skiptingu sameiginlegra gæða og á stefnumótun eins og sambærilegir starfsmenn einkafyrirtækja. Miðað við samofna sögu ríkis og auðvalds þyrfti enginn að undrast þetta.

Staða fólks í þessu þrepaskipta kerfi er ákveðin og lögbundin. Það er í mörgum tilfellum refsivert að óhlýðnast fyrirmælum yfirboðara og það eru ríkisstofnanir sem sjá um að handsama og dæma hina seku. En það eru ekki einungis fastmótuð lög sem tryggja að þetta kúgandi fyrirkomulag helst í sessi. Það hefur verið meitlað í vitund okkar sem eðlilegt á svo árangursríkan máta að það þarf ekki að beita þvingunum til að viðhalda því nema í undantekningartilvikum. Við lærum frá barnæsku þau hegðunarmynstur sem þarf til að halda grunngerð stigveldisins. Börn eiga að hlýða kennurum sínum, breyta um hegðun þegar bjalla glymur og gera hluti gegn eigin vilja. Við eigum að hlýða einkennisklæddum, sætta okkur við heimskulegar ákvarðanir og fyrst og fremst að halda okkur frá því að taka þátt í mótun samfélagsins. Þetta lærum við á vinnustaðnum og í samskiptum við hið opinbera. Okkar hlutverk er að vinna og neyta; hlýðni kunnum við. Þetta höfum við lært svo rækilega að þegar í harðbakkan slær og kreppa skellur á dettur fæstum okkar annað í hug en að mótmæla og biðla til yfirvaldsins. Við kvörtum til alþingis og viljum önnur andlit í sömu stöður. Að breyta um strúktúr eða taka málin í grundvallaratriðum í eigin hendur er ekki það fyrsta sem lagt er í. Við mótmælum kónginum og setjum nýjan í hans stað þó að við vitum það, innst inni, að grundvallarstrúktúrinn í þessu stéttskipta, stigveldisstýrða auðvaldssamfélagi, stendur eftir sem fyrr.

Áhrifin af því að skipta um flokka eða fólk á þingi getur í besta falli leitt til smávægilegra fegurðaraðgerða á sjúkri samfélagsgerð. Til að skapa mannúðlegt samfélag þarf meira til. Það krefst smíði nýrrar samfélagsgerðar og, það sem er allra mikilvægast, það krefst breytinga á því hvernig við hugsum.

Enginn vill láta kúga sig, firra sig lífsverki sínu og tilveru eða vinna til að þjóna hagsmunum annarra á meðan eigin hagsmunir sitja á hakanum. Líf undir slíkum kringumstæðum er líf þrælsins. Af því leiðir að réttlátt samfélag er samansett á þannig máta að hver og einn getur haft áhrif á sitt nánasta umhverfi að svo miklu leiti sem ákvörðunin hefur áhrif á viðkomandi og að hver og einn getur valið sjálf eða sjálfur hvað vinnuaflið er notað í. Réttlátt samfélag er samfélag frjálsra jafningja.

Hér má skjóta inn í að hugtakið jöfnuður misskilja margir á þann hátt að það tákni að allir séu eins og að valdi sé beitt til að tryggja að svo verði. Því skal árétt að þegar sagt er að jöfnuður ríki meðal fólks í þessu samhengi táknar það að hver og einn hefur jafnan atkvæðisrétt í ákvörðunartöku og hver annar. Tvær manneskjur þurfa ekki að hafa sömu áhugamál, sama útlit, sömu hæfileika eða drauma til að vera jafningjar.

Hversvegna róttæk samvinnufélög?

Að mynda róttæka, byltingasinnað samvinnu- og sameignarfélag er liður í að koma á fót réttlátara samfélagi. Kannski dettur einhverjum í hug kaupfélögin og Samband samvinnufélaga (sambandið) í hug þegar minnst er á slík félög. En þó margt ágætt megi segja um þau, var sambandið hvorki byltingarafl né róttækt. Kaupfélögin, eins og þau voru á Íslandi, héldu eftir sama kúgunarstrúktúr og ríkir annarsstaðar í samfélaginu. Þau voru með stigveldisformgerð, launa- og valdamisræmi og þeim var stórkoslega miðstýrt. Slík stofnun er ekki það sem við þurfum. Við þurfum félög sem er stýrt á sama máta og það samfélag sem við óskum okkur að verði til. Þessi félög þurfa að verða grunnstoð samfélagsins svo að hugtakið „samfélag“ beri nafn með rentu. Við getum öll byrjað að mynda samvinnufélög af þessu tagi.

Verkefni samvinnufélags geta verið af hvaða tagi sem er. Þau geta núist um að ljúka skammtímaverkefnum, eins og uppbygingu húsnæðis, að halda mannfögnuði eða framkvæma félagslega aðgerð. Þau geta einnig verið langtímaverkefni, eins og varanlegur vinnustaður fólks, hverfishreyfing, tækniþróun og framleiðsla o.s.frv. Hvað félagið starfar við er ekki það sem greinir það frá einkareknum gróðafyrirtækum eða opinberum stofnunum. Ýmsar leiðir eru til og mismunandi félagsform geta verið við hæfi í mismunandi tilfellum.

Margar aðferðir hafa verið þróaðar til að stýra róttæku samvinnufélagi. En það má til sanns vegar færa að sum einkenni eru betur prófuð og vinsælli en önnur og það hlýtur að teljast eðlilegt að notast við þá formgerð sem reynst hefur happadrjúgust. Það sem helst einkennir vel heppnuð samvinnufélög er eftirfarandi: Í þeim eru allir meðlimir jafnir eigendur og enginn starfsmaður er ekki eigandi. Félagið notast við ákvörðunarferli sem líkist svokallaðri „consensus“ fundarstjórn (sem hefur verið kallað einróma ákvörðunarferli); þ.e. þess er bæði gætt að minnihlutinn geti ekki kúgað meirihlutann, en einnig að meirihlutinn geti ekki kúgað minnihlutann. Oft er það þannig að þó að einungis fáir séu andsnúnir einhverri hugmynd eru það einmitt þessir fáu sem verða fyrir mestum áhrifum af ákvörðuninni. Þessi tegund fundargerðar er margprófuð og japönsk stórfyrirtæki og svokölluð elítufyrirtæki á borð við lögfræðingafélög í Bandaríkjunum nota gjarnan þetta ákvörðunartökuform. Það krefst þó ákveðni að tileinka sér þau vinnubrögð sem þarf til að vel gangi. Í róttækum samvinnufélögum er þess einnig gætt að ábyrgðum er dreift jafnt á meðlimi; sum málefni eru þess eðlis að ekki þarf að funda um ákvarðanir sem gilda um þær. Í róttækum samvinnufélögum er þess einnig gætt að klíkur myndist ekki sem geta tekið að sér raunveruleg völd í félaginu og gert það að stigveldi í raun. Þess verður að gæta að ekki verði stéttskipting á milli „stjórnenda“ eða „samþættara“ og annarra; slíkt gæti leitt til einræðis stéttar sem Michael Albert og fleiri hafa kallað samþættunarstéttina (coordinator class); en færa má rök fyrir því að sú stétt hafi einmitt tekið öll völd eftir valdatöku sósíalistaflokka austur Evrópu á fyrrihluta tuttugustu aldarinnar. Loks þurfa róttæk samvinnufélög að stunda samskipti við önnur aðskild félög á sama jafningjagrunni og stunduð eru innan félagsins.

Eins og áður segir getur samvinnufélag haft hvaða grunnvirkni sem er. En brýnast er að byrja þar sem vald almennings ætti að vera, en er ekki. Fyrsta stopp eru án efa verkalýðsfélögin. Þau eru í dag einmitt mynduð í sama form og önnur í auðvaldinu: Einskonar stétt yfirmanna, samþættara og stjórnenda hafa þar öll raunveruleg völd og móta stefnuna. Eftir að fjármálakreppan skall á varð öllum ljóst að verkalýðshreyfingin í núverandi mynd er dauð: Hún sinnir ekki hagsmunum verkalýðsins og er ekki það afl sem okkur skortir svo mjög í dag.

Það fylgja því mörg erfið verkefni að starfa í samvinnufélagi. Ævilöng félagsmótun í stigveldiskerfi hverfur ekki á augabragði og persónulegur ágreiningur eða mannlegur breyskleiki kemur oft betur í ljós þegar ekki er hægt að skýla sér bakvið stöðu innan valdastrúktúrsins. En þetta er einmitt einn mikilvægasti þáttur samvinnufélagsins og ástæðar er til að koma því fram. Við þurfum að læra að taka ábyrgð og fara með frelsi. Við þurfum að læra samvinnu og sameiginlega ákvörðunartöku og skilja að við berum öll ábyrgð á samfélaginu. Þetta lærum við best með því að æfa okkur og fá reynslu. Með tíð og tíma verða vinnuferlin í flötum strúktúr jafn sjálfsögð og yfirvaldslýðni og goggunarröð er



« Hvernig geta arkitektar lagt sitt af mörkum til að leysa vandamál framtíðarinnar?
Ljósmyndun er glæpur »

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Nýtt inn um lúguna

  • Jólasýning Þjóðleikhússins
  • Skömm Ríkisútvarpsins
  • Gráir fyrir járnum á Gaza
  • Sameiningartákn þjóðar
  • Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.
  • Afleit stærðfræði
  • Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
  • Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Facebook

Flokkar

  • Atvinnumál (18)

  • Aðsendar greinar (5)
  • Borgarskipulag (3)
  • Efnahagsm (7)
  • Efnahagsmál (59)
  • ferðaþjónusta (2)
  • Fjármál (23)
  • Fjölmiðlar (10)
  • Heilbrigðismál (18)
  • Húsnæðismál (5)
  • Húsvernd (2)
  • Ítalía (2)
  • Jafnréttismál (2)
  • Ljóð (1)
  • Lögfræði (7)
  • Óflokkað (15)
  • Rannsóknarskýrslan (3)
  • Rekstur (4)
  • Saga (8)
  • Samfélagið (82)
  • Sjávarútvegsmál (20)
  • Skólamál (3)
  • stjórnlagaþing (1)
  • Stjórnmál (146)
  • stjórnsýsla (9)
  • Sveitarstjórnarmál (5)
  • Umhverfismál (5)
  • Uncategorized (3)
  • Utanríkismál (14)
  • Viðskipti (36)
  • Eyjan að upphafssíðu
  • Auglýstu á Eyjunni

Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Lúgan

Undirvalmynd

  • Lúgan
Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar

Eyjan - Smáratorgi 3, Kópavogi - eyjan@eyjan.is

  • Um Eyjuna
  • Auglýsingar