Þínar fréttir, þín skoðun






29.6 2010 - Ummæli ()

Þjóðfundir stjórnmálaflokkanna: Bull í boði þjóðarinnar?

Höfundur: Jónas Gunnar Einarsson -
Flokkur: Óflokkað  

Þjóðfundir þriggja stjónmálaflokka dagana 25 og 26 júni 2010 eru mikil vonbrigði.

Fyrirfram mátti af nokkurri bjartsýni búast við að megintilgangur fundanna væri samráð og samstarf að stefnumótun byggð á framtíðarsýn með almannahag almannaheill að leiðarljósi. Eftir fundi virðast þessi stóru fólkaþing mest hafa verið hjal og bull í boði þjóðarinnar.

Fjölmargt fundargesta hlýtur í framhaldi að flokka sjálf sig og skrásetja ósjálfstæð og ófullvalda. Því fundirnir opinbera furðuleg vinnubrögð um eðlilega rökræðu, jafnræði og jafnstöðu, ef ekki valdníðslu á gestunum og tíma þeirra, þekkingu og skoðunum.

Verri vinna en engin?

Á fundunum virðist  lítt eða ekki hafa verið farið yfir helstu álitamál og málefni með skipulegum og skilvirkum hætti heldur flestu sópað til framtíðar.

Um það bil tvöþúsund manns í boði þjóðarinnar skila því af sér verri vinnu er þarf fyrir þjóð og framtíð.  Ekki síst aukinni fáfræði  og sundurlyndi. Flokksbundnu skila fundirnir einna helst tveimur valkostum: skárri meðvirkni um flokkslínu forystu eða éti það sem úti frýs.

Stjórnunarkreppa á krepputíð.

Árangur fundanna lýsir því miður stjórnunarkreppu um rekstrarstjórn flokkanna,  framtíðarsýn þeirra og stefnu­mótun og ekki síst um umræðu á rökstólum.

Fundaskipulag og dagskrár undarlegt ská og skjön sem óþarflega draga úr eðlilegri rökræðu; hug­mynd­a­fátækt sama skapi nöturleg; umræður reynslubolta skila þoku, ályktanir um brýnust mál skeytaform yfirborðs.

Stjórn­málaflokkarnir þurfa augljóslega að taka til hjá sér. Og umræðuhætti þarf að bæta; ekki síst ef ætla að starfa með okkur góðum landsmönnum, t.d. að auknu beinu lýðræði, stefnumótun og ákvarðanatöku, um okkar eigin mál og málefni.

Allt upp í loft hjá Sjálfstæðisflokk?

Spurt er: Hvað í ósköpunum gengur á í Sjálfstæðisflokki?

Svar: Allt í himnalagi eins og alltaf skv. innvígðu: Lögfræðingarnir í íhaldsarmi flokksins þrífast einfaldlega ekki vel í sjálfum sér án samningsstöðu. Framganga þeirra mest eftir a) viðbúnaðarstigi  (þ.e. mál skiptir miklu máli – mál skiptir meir en miklu máli – mál skiptir meir en miklu meir en miklu máli) og b) eftir því hvort mál hefur áhrif á valdastöðu og valdakerfi skuggaforystu flokksins.

Tilgangurinn ætíð að skapa samningsstöðu í máli til hrossakaupa um mál, en til vara frest, til að skapa samningsstöðu eða ónýta mál.  Inngróinn júrídískur þánkagángur sem ósjaldan leiðir til alskyns vitleysu, óskilvirkni og kostnaðar í stjórnmálum, stjórnsýslu, viðskiptalífi og áfram veginn.

ESB-umsóknin skiptir þessa lögfræðinga miklu máli og suma meir en miklu máli (þ.e. umsókn og aðildarferli sem skila þjóðinni aðildarsamning til sjálfstæðrar ákvörðunar — sem skuggaforystan sá strax fyrir löngu síðan í hendi sér er töff samningsstaða út frá valdastöðu sinni og valdakerfi — þess vegna er m.a. enn moggi (flott) og aðal töff ritstjóri).

Frjálslyndi armur flokksins, sem og almennir flokksmenn (stórir hópar fólks sem öðru jöfnu skipta máli innan flokksins þó skipti ekki miklu máli) skipta engu máli á viðbúnaðarstigi eitt tvö og þrjú.  Og er forn þungbær leikregla góðu flokk ýmsu leyti því frjálslyndi armurinn og almennir flokksmenn eru hryggjarstykkið í flokknum.

Formannsþáttur als og Guðbjart.

Bjarni formaður næstum staðfesti eins og hægt er að staðfesta þessa frjóu heimssýn íhalds­arms­ins í viðtali á Bylgjunni á sunnudaginn 27. júní 2010, þegar sagði hvass grunngildi flokksins blíva.

Hálfhrópaði svo þetta að flokkurinn: „…vill ekki samninga við fleiri milliríkjasamtök.“  Og meinti ESB og steingleymdi EES og stóra baklandi.

Og svo kom þetta: „…allir (flokksfélagar) horfi á það sem eykur fylgi mest!“  Krútt einlæg hvöt, tilskip­unarstíl hvimleiðum.

Stórfróðlegt viðtal – þó að heldur meir kæmi á óvart nýkjörinn varaformaður er eiginkona forstjóra álversins Alcóa, ef skildi rétt, dóttir Nordals gamla seðlabankastjóra…  Og svo kom þetta hér aðeins meir en heldur meir á óvart: …bjartleit á brún Guðbjart…

Stjórnmálamenn óskast í sveit?

Stjórnmálamenn ráða ósjaldan örlögum þjóða með frammistöðu sinni og ákvarðanatöku.

Þess vegna er ekki úr vegi að rifja það upp aftur að miklu verri er sú heimska sem lofar vondum stjórnmála­manni að sitja áfram í starfi sínu en sú heimska sem réði hann til starfsins.

Þjóðina sárvantar miklu skárri stjórnmálamenn. Fólk sem nennir að mennta sig upp til starfsins og ávinnur sér traust kjósenda á leið þangað – traust eins og t.d. formbirtist oft í hrifningu fjölbreytts stuðnings­manna­hóps og frjálsum framlögum til kosningabaráttu.

Samtíðin framtíðin og þjóðin krefjast einfaldlega betri og skilvirkari vinnu stjórnmálamanna og stjórnmálasamtaka í þágu réttra umbjóðenda almannahag almannaheill.

Krefjast betri árangurs á þjóðarskútu okkar sem nú eftir stórsjó helgarinnar höktir meiri laskajór en fyrir helgi, mörg orðin æði þreytt þungum árum; er þá nema von spurt sé á þóftu aftur og aftur: Hvar fást skárri stýrimenn?



« Þjóðfundir stjórnmálaflokkanna
Gylfa úr ráðherrastóli »

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Nýtt inn um lúguna

  • Jólasýning Þjóðleikhússins
  • Skömm Ríkisútvarpsins
  • Gráir fyrir járnum á Gaza
  • Sameiningartákn þjóðar
  • Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.
  • Afleit stærðfræði
  • Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
  • Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Facebook

Flokkar

  • Atvinnumál (18)

  • Aðsendar greinar (5)
  • Borgarskipulag (3)
  • Efnahagsm (7)
  • Efnahagsmál (59)
  • ferðaþjónusta (2)
  • Fjármál (23)
  • Fjölmiðlar (10)
  • Heilbrigðismál (18)
  • Húsnæðismál (5)
  • Húsvernd (2)
  • Ítalía (2)
  • Jafnréttismál (2)
  • Ljóð (1)
  • Lögfræði (7)
  • Óflokkað (15)
  • Rannsóknarskýrslan (3)
  • Rekstur (4)
  • Saga (8)
  • Samfélagið (82)
  • Sjávarútvegsmál (20)
  • Skólamál (3)
  • stjórnlagaþing (1)
  • Stjórnmál (146)
  • stjórnsýsla (9)
  • Sveitarstjórnarmál (5)
  • Umhverfismál (5)
  • Uncategorized (3)
  • Utanríkismál (14)
  • Viðskipti (36)
  • Eyjan að upphafssíðu
  • Auglýstu á Eyjunni

Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Lúgan

Undirvalmynd

  • Lúgan
Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar

Eyjan - Smáratorgi 3, Kópavogi - eyjan@eyjan.is

  • Um Eyjuna
  • Auglýsingar