Þínar fréttir, þín skoðun






22.6 2010 - Ummæli ()

Um stjórnlagaþing

Höfundur: Einar Þorbergsson -
Flokkur: Samfélagið, Stjórnmál, stjórnsýsla, Viðskipti  

Nauðsynlegt er að takmarka aðkomu alþingismanna að væntanlegri stjórnarskrá. Þeir eiga að hafa sama rétt og hinn almenni borgari  þ.e. að greiða atkvæði um stjórnarskrána í sérstakri þjóðaratkvæðisgreiðslu, en ekki einhverju sem hengt er við þingkosningar.

Hin nýja stjórnarskrá þarf að fela í sér að menn sitji ekki bæði að löggjafavaldinu og framkvæmdavaldinu (og ég tala nú ekki um dómsvaldinu). Í raun þarf ekki að hafa ráðherra heldur ósköp venjulega embættismenn, sem skipt er um þegar breytingar verða á alþingi. Hægt er að hafa nefnd (sem hvort sem er er til staðar, sbr. uitanríkismálanefnd og fl.) og að embættismaðurinn (mennirnir) mæti þar á hvern fund.

Það þarf að fækka alþingismönnum niður í 41 og til þess að lög verði samþykkt þurfa 21 þingmenn að greiða atkvæði með lögunum (ekki einfaldur meirihluti).

Nauðsynlegt er að skapa aðhald á alþingismenn og ég álít að best sé að láta auð atkvæði og þá sem heima sitja skila auðu þingsæti. (sparnaður á tíma og fé sem ekki veitir af). Ef þetta hefði verið við lýði þegar kosið var til alþingis síðast þá væru núna 11-12 auð þingsæti í sölum alþingis og mánaðarlegur sparnaður 6-8 miljónir.

Nú kann svo að fara að ekki nái 21 þingmaður kjöri (þannig að auð sæti séu fleiri en þingmenn, eða að ekki sé hægt að mynda meirihluta) þá ber að kjósa upp á nýtt innan 18 mánaða og á meðan fara stóru málin í þjóðaratkvæði. Þetta skapar aðhald því þá verða þingmenn að leggja sig fram alt kjörtímabilið en ekki bara á fjögurra ára fresti.

Ég vil taka það fram að alþingi rita ég með litlum staf sem undirstrikar takmarkalausa vanvirðingu mína á þessari stofnun og starfsmönnum hennar, sem hafa algjörlega brugðist trausti umbjóðenda sinna.



« Heilbrigðisstjórnsýslan skýtur sig í vinstri fótinn
Staðreyndastífla Kristins H Gunnarssonar »

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Nýtt inn um lúguna

  • Jólasýning Þjóðleikhússins
  • Skömm Ríkisútvarpsins
  • Gráir fyrir járnum á Gaza
  • Sameiningartákn þjóðar
  • Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.
  • Afleit stærðfræði
  • Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
  • Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Facebook

Flokkar

  • Atvinnumál (18)

  • Aðsendar greinar (5)
  • Borgarskipulag (3)
  • Efnahagsm (7)
  • Efnahagsmál (59)
  • ferðaþjónusta (2)
  • Fjármál (23)
  • Fjölmiðlar (10)
  • Heilbrigðismál (18)
  • Húsnæðismál (5)
  • Húsvernd (2)
  • Ítalía (2)
  • Jafnréttismál (2)
  • Ljóð (1)
  • Lögfræði (7)
  • Óflokkað (15)
  • Rannsóknarskýrslan (3)
  • Rekstur (4)
  • Saga (8)
  • Samfélagið (82)
  • Sjávarútvegsmál (20)
  • Skólamál (3)
  • stjórnlagaþing (1)
  • Stjórnmál (146)
  • stjórnsýsla (9)
  • Sveitarstjórnarmál (5)
  • Umhverfismál (5)
  • Uncategorized (3)
  • Utanríkismál (14)
  • Viðskipti (36)
  • Eyjan að upphafssíðu
  • Auglýstu á Eyjunni

Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Lúgan

Undirvalmynd

  • Lúgan
Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar

Eyjan - Smáratorgi 3, Kópavogi - eyjan@eyjan.is

  • Um Eyjuna
  • Auglýsingar