Þínar fréttir, þín skoðun






21.6 2010 - Ummæli ()

Heilbrigðisstjórnsýslan skýtur sig í vinstri fótinn

Höfundur: Vilhjálmur Ari Arason -
Flokkur: Heilbrigðismál  

Frá 15. júní sl. lokuðu síðdegisvaktir heilsugæslustöðvanna og verður svo
til 15. ágúst. Áður var búið að skerða þjónustu heilsugæslunnar frá því
fyrir ári um 15- 20%. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur auk þess um
árabil verið undirmönnuð og heimilislækna vantar nú sárlega til starfa. Í
sumar er heilsugæslan rekin á lágmarks mannafla á daginn enda ekki ráðið í sumarafleysingar.

Síðdegisvaktirnar hafa hingað til annað um 60.000 komum á ári, eða hátt í
það sem Læknavaktin sinnir að auki á kvöldin og um helgar. Annað eins
sinnir síðan Bráðamóttaka LSH og Barnalæknavaktin. Eins og enda nær er
frjáls aðgangur að öðrum sérfræðingum á stofu og sem sinna nokkrum hundrað þúsunda koma á ári hverju. Á sama tíma er aðeins bráðari erindum nú sinnt á daginn á heilsugæslustöðvunum og öðrum vísað frá.

Það er eins með ólíkindum að það skuli verða auðveldara að fá
grunnþjónustu í heilsugæslunni á afskktustu stöðum landsins en í sjálfri
höfuðborginni. Það er með ólíkindum að almenningur á höfuðborgarsvæðinu
skuli ekki vera farinn að gera kröfu um betri grunnþjónustu fyrir börnin
sín og í raun lágmarks heilsugæsluþjónustu fyrir alla eins og meðal annars rannsóknaniðurstöður hér á landi sýna og birtar hafa verið í alþjóðlegum læknatímaritum. Forystumenn stjórnmálaflokkanna láta sig málið lítið varða.

Stjórnarmeirihlutinn réttlætir allt með frösum um nauðsynlegan niðurskurð, horfa skammt fram á veginn og vísa ábyrgðinni til heilbrigðisráðherra.

Heilbrigðisráðherra talar á tyllidögum um að styrkja þurfi heilsugæsluna
og tryggja jöfnuð í aðgengi. Heilsugæslan í höfuðborginni virðist greinilega undanskilin í þeirri jöfnun. Og ríkisfjölmiðlarnir þegja þunnu hljóði.

Það er skylda heilbrigðisstarfsfólks og ekki síst lækna að fyrirbyggja
fyrirsjáanleg slys og á það ekkert síður við um skipulag heilbrigðismála,
enda heilsa og líf fólksins í veði.

Fagleg sjónarmið heilsugæslunnar eru nú látinn lönd og leið og eftirfylgni með krónískum sjúkdómum gefið langt nef í sumar. Eins möguleikum að farið verði eftir alþjóðlegum klínískum leiðbeiningum um meðferð sjúkdóma sem gegna ekkert síður mikilvægu hlutverki í heilsugæslunni en leiðbeiningar um góða og eðlilega starfshætti hjá því opinbera. Meðferð og eftirfylgni með eyrnabólgum barna og öndunarfærasýkingum á t.d fyrst og fremst að fara fram á heilsugæslustöðvunum til að meðferð með sýklalyfjum verði markvissari og draga megi úr þróun sýklalyfjaónæmis sem er alvarlegt vandamál hér á landi.

Heilsugæslan sem hefur verið undirmönnuð um árabil mátti allra síst við
þessum niðurskurði. Auk þess er hætta er atgerfisflótta
heilbrigðisstarfsfólks frá heilsugæslunni ef ekki er hægt að treysta á að
hún sé komin til að vera og haldið sé áfram með markvissa uppbyggingu.

Við vitum vel hvar þjónustan er ódýrust og hvaða þjónusta skilar mestum
árangri til bættir heilsu þegar til lengri tíma er litið. Eins hvað hægt sé að gera til að spara í dýrari skyndivaktarúræðum á kvöldin og um helgar sem í mörgum tilvikum hefur miklu hærri afleiddan kostnað í för með sér t.d. óþarfa rannsóknarkostnað á spítölunum og oft ótímabæra lyfjanotkun.



« Erum við líka að glata vatninu?
Um stjórnlagaþing »

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Nýtt inn um lúguna

  • Jólasýning Þjóðleikhússins
  • Skömm Ríkisútvarpsins
  • Gráir fyrir járnum á Gaza
  • Sameiningartákn þjóðar
  • Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.
  • Afleit stærðfræði
  • Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
  • Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Facebook

Flokkar

  • Atvinnumál (18)

  • Aðsendar greinar (5)
  • Borgarskipulag (3)
  • Efnahagsm (7)
  • Efnahagsmál (59)
  • ferðaþjónusta (2)
  • Fjármál (23)
  • Fjölmiðlar (10)
  • Heilbrigðismál (18)
  • Húsnæðismál (5)
  • Húsvernd (2)
  • Ítalía (2)
  • Jafnréttismál (2)
  • Ljóð (1)
  • Lögfræði (7)
  • Óflokkað (15)
  • Rannsóknarskýrslan (3)
  • Rekstur (4)
  • Saga (8)
  • Samfélagið (82)
  • Sjávarútvegsmál (20)
  • Skólamál (3)
  • stjórnlagaþing (1)
  • Stjórnmál (146)
  • stjórnsýsla (9)
  • Sveitarstjórnarmál (5)
  • Umhverfismál (5)
  • Uncategorized (3)
  • Utanríkismál (14)
  • Viðskipti (36)
  • Eyjan að upphafssíðu
  • Auglýstu á Eyjunni

Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Lúgan

Undirvalmynd

  • Lúgan
Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar

Eyjan - Smáratorgi 3, Kópavogi - eyjan@eyjan.is

  • Um Eyjuna
  • Auglýsingar