Netfangið er: lugan@eyjan.is
Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.
Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
“Landið allt er skipulagsskylt. Bygging húsa og annarra mannvirkja ofan jarðar og neðan og aðrar framkvæmdir og aðgerðir sem hafa áhrif á umhverfið og breyta ásýnd þess skulu vera í samræmi við skipulagsáætlanir …” Þetta er tilvitnun í skipulags- og byggingarlög sem eiga að gilda um allar framkvæmdir á Íslandi. Víða kveður svo fast að í skipulagsmálum að sumarhúsaeigandi getur t.d. ekki stækkað lítið sumarhús um nokkra fermetra án þess að á undan fari flókið skipulagsferli. Þó er ein stórframkvæmd sem er að mestu leyti undanþegin skipulagsferli en það er skógrækt.
Landshlutaverkefni í skógrækt
Lög um landshlutaverkefni í skógrækt voru samþykkt á Alþingi í júní 2006. Tilgangur og markmið laganna er skv. 1. gr.: ” .. að skapa skógarauðlind á Íslandi, rækta fjölnytjaskóga og skjólbelti, treysta byggð og efla atvinnulíf, …” Það þarf ekki að fjölyrða um að þessi nýja búgrein, skógræktin, hefur víða verið kærkomin viðbót við búrekstur hjá bændum og er það fagnaðarefni. Þeir hafa samtvinnað skógræktina öðrum búgreinum á búum sínum og fléttað hana við landið með góðum árangri og til fegrunar í mörgum tilfellum. Svo eru það hinir, ríkisstyrktu frístundabændurnir, sem hafa lífsviðurværi sitt af öðrum störfum.
Spekúlantar kaupa jarðir
Á síðustu árum, árum græðgi og siðleysis, keyptu margir spekúlantar úr stórborginni jarðir víða um land. Þetta var fyrst og fremst gert með viðskiptahugmyndir, fjárfestingar og von um skjótfenginn hámarksgróða að leiðaljósi. Jarðir hækkuðu stjarnfræðilega í verði á augabragði. Sumar þessara jarða hafa nú verið bútaðar niður í smáskika sem seldir hafa verið mörgum einstaklingum fyrir offjár. Um það væri hægt að skrifa langa sögu. Spekúlantar keyptu líka eyðjarðir fyrir lítinn pening m.a. til að komast í skógræktarverkefni sem fjármagna nú rekstur þeirra jarða. Flestir þeirra eiga ekki lögheimili á jörðunum og hafa laun sín af öðrum störfum. Tilfinningin fyrir landinu er að því er virðist lítil. Skógrækt er í flestum tilfellum ekki skipulags- eða framkvæmdaleyfisskyld og því eftirlitslaus.
Dæmi
Tek ég hér eitt dæmi. Jarðirnar sem um ræðir eru eyðijarðirnar Klukkuland og Hólakot í Dýrafirði. Þær keypti lögfræðingur að sunnan í félagi við aðra og stofnuðu þeir um það einkahlutafélag. Enginn ábúandi er á jörðunum og enginn er skráður með lögheimili þar skv. þjóðskrá. Þetta einkahlutafélag hefur gert samning við Skjólskóga á Vestfjörðum um skógrækt. Samningurinn er til 10 ára og framlög til verkefnisins veitt árlega. Skógræktaráætlunin nær yfir 192 ha lands og gerir ráð fyrir að þar sé nánast hver einasti blettur nýttur til skógræktar. Skógrækt 200 ha og stærri er háð mati á umhverfisáhrifum. Skrýtin tilviljun. Ég þori að fullyrða að enginn bóndi myndi fara svona með jörð sína. Ekki er að sjá nein merki um breytta landnotkun á jörðunum í nýju Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020.
Almannafé
Ríkissjóður veitir árlega rúmum 400 milljónum til landshlutabundinna skógræktarverkefna. Þetta eru umtalsverðir fjármunir af almannafé ekki síst núna á krepputímum. Það er því mikilvægt að þeir fari fyrst og fremst til bænda sem búa á jörðum sínum. En skoðum aðeins hvert peningarnir fara. Tökum dæmið af Vestfjörðum. Framlög eru greidd á hverju ári í 10 ár. Upplýsingarnar eru aðeins fyrir árið 2008 þar sem mér hefur verið gert erfitt um vik að nálgast upplýsingar fyrir árið 2009. Vestfirðir skiptast í 4 skógræktarsvæði. Klukkuland og Hólakot eru á Norðursvæði. Þar fá 16 jarðir samtals 8,1 milljón króna framlag á bilinu 40-800 þúsund krónur; nema Klukkuland og Hólakot fá 3,0 milljónir. Til samanaburðar fær allt Vestursvæðið 1,7 milljónir og allt Suðursvæðið 2,3 milljónir. Þetta eru opinber gögn sem flestir ættu að kynna sér.
Skógræktargirðingar
Þeir sem taka þátt í skógræktarverkefnum fá skógræktargirðingar greiddar. Á Klukkulandi og Hólakoti háttar þannig til að jarðirnar liggja að Núpsá sem eru landamerki milli Núps og jarðanna tveggja. Nú hyggjast frístundabændurnir gera skógræktargirðingu og ætti það svo sem að vera þeirra einkamál, þar sem Núpur á ekki land að griðingunni. En þeir hafa plantað grenitrjám að árbakka Núpsár og ætla sér því að setja girðinguna fast meðfram ánni og helst í land Núps. Þó segir í 23. gr. laga um náttúruvernd: “Óheimilt er að setja niður girðingu á vatns-, ár- eða sjávarbakka þannig að hindri umferð gangandi manna.” Girðing á árbakkanum mun hindra umferð gangandi manna og það mun greniskógurinn sannarlega líka gera þegar hann vex.
Hagsmunir nágranna
Þrátt fyrir að frístundabændurnir fái skógræktargirðinguna greidda af almannafé vilja þeir nú líka seilast í vasa nágrannanna til að fjármagna hana. Krefjast þeir þess að eigendur Núpsjarðarinnar greiði helminginn af girðingarkostnaðinum. Vitna þeir þar í girðingarlög sem eiga við um landamerkjagirðingar þegar landamerki eru óljós. Þeir hafa reyndar sent landeigendum Núps tvær tillögur. Önnur tillagan er með skógræktargirðingu á landi Klukkulands og Hólakots og gera þeir kröfu um að landeigendur Núps greiði helming þeirrar girðingar. Hin tillagan er með skógræktargirðinguna Núpsmegin við ánna að hluta til og nær þar langt inn á Núpsjörðina. Bjóða þeir að sú girðing yrði landeigendum Núps að kostnaðralausu.
Upplýsingaskylda
Ég hef reynt að vekja athygli Bændasamtaka Íslands á málinu þar sem það getur varðað hagsmuni bænda að borga dýrar skógræktargirðingar á nágrannajörðum. Jafnframt hef ég haft samband við sjávarútvegs- og landbúnaðraráðuneyti sem landshlutaverkefni í skógrækt heyra undir en þar er fátt um svör. Það eina sem kom út úr rannsóknarvinnu minni er tölvupóstur frá framkvæmdastjóra Skjólskóga á Vestfjörðum sem upplýsir mig, í samráði við lögfræðing sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, um, að ég geti ekki lengur fengið upplýsingar um framlög til skógræktarverkefna nema: ”… að beiðni um upplýsingarnar berist á skriflegu formi þar sem fram komi nafn og kennitala fyrirspyrjanda og helst upplýst í hvaða tilgangi upplýsinga er leitað.” Þó eru þetta opinber gögn og almannafé.
Hagsmunatengsl
Meðeigendur lögfræðingsins að sunnan að jörðunum Klukkulandi og Hólakoti eru framkvæmdastjóri Skjólskóga á Vestfjörðum, sem heldur utan um verkefnið og úthlutar framlögunum og framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands, sem ætti að vera vel upplýstur um skógræktarmál.