Þínar fréttir, þín skoðun






23.4 2010 - Ummæli ()

Bankamafían?

Höfundur: Íris Arnlaugsdóttir -
Flokkur: Efnahagsm, Fjármál  

“Nei vinur þú færð ekki að selja íbúðina þína þú skuldar of mikið í henni”.  Segir útibústjóri Arions banka við mann einn sem var sokkinn ofan í skuldafen vegna íbúðar sem hann átti og hafði ekki efni á að borga af.  “En ég skuldaði bara 11 milljónir í íbúðinni en það er komið upp í 17 milljónir vegna bankahruns sem enginn vill taka ábyrgð á.  Ég hef engan veginn efni á að borga af þessari íbúð eins og þú sérð enda hef ég hef ekki borgað krónu af henni s.l. 5 mánuði.  Núna er hins vegar kominn greiðandi sem er tilbúinn að taka við lánunum, búinn að fara í gegnum greiðslumat og ætlar sér að borga af henni .”(annað en ég)  Nei segir bankinn  (stjórinn) við 3 barna faðirinn (það vottaðu fyrir málmtóni í röddinni), það þarf að borga 3 milljónir inn á lánið.  Fine segir 3 barna faðirinn “þið gerið mig þá bara gjaldþrota fyrst þið viljið það frekar en að fá lánið greitt ”.

Eru þetta klókir viðskiptahættir ?  Það virðist sem  bankarnir þurfa ekkert að spá í góða viðskiptahætti því ef þeir fara á hausinn þá tekur ríkið bara við þeim,  borgar upp skuldirnar  og allir halda áfram að vinna við það sama. Engin þarf að taka ábyrgð á neinum ákvörðunum. Enginn þarf að  vera klár í kollinum og  reka  bankann eins og hvert annað fyrirtæki þar sem reglan er að það er betra að fá pening inn í fyrirtækið heldur en gera fólk gjaldþrota og fá þá engan pening inn.

Þar með er ekki öll sagan sögð.  Annar aðili skuldar bankanum fullt af pening og jafnvel töluvert  meiri pening heldur en 3 barna faðirinn, hann fær allt afskrifað og heldur áfram að lifa sínu lúxus lífi af því hann er, sjáðu til ,í “klíkunni”.  Þetta minnir óneitanlega á Mafíu, Bananalýðveldi og fleira sem einkennist af því að jafnrétti, réttlæti, lög og reglur er eitthvað sem er hægt að sniðganga  (ef þú ert með nógu góðan lögfræðing, ert nógu siðlaus og klókur í að finna leið framhjá.

Fyrir mér er þetta ósköp einfalt.  Það er eins og einhver hafi tekið gríðarleg lán og gert mig að ábyrgðamanni án þess að ég hafi samþykkt það..



« Umboðsmaður Alþingis og Fjármálaeftirlitið
Til Íslendinga »

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Nýtt inn um lúguna

  • Jólasýning Þjóðleikhússins
  • Skömm Ríkisútvarpsins
  • Gráir fyrir járnum á Gaza
  • Sameiningartákn þjóðar
  • Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.
  • Afleit stærðfræði
  • Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
  • Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Facebook

Flokkar

  • Atvinnumál (18)

  • Aðsendar greinar (5)
  • Borgarskipulag (3)
  • Efnahagsm (7)
  • Efnahagsmál (59)
  • ferðaþjónusta (2)
  • Fjármál (23)
  • Fjölmiðlar (10)
  • Heilbrigðismál (18)
  • Húsnæðismál (5)
  • Húsvernd (2)
  • Ítalía (2)
  • Jafnréttismál (2)
  • Ljóð (1)
  • Lögfræði (7)
  • Óflokkað (15)
  • Rannsóknarskýrslan (3)
  • Rekstur (4)
  • Saga (8)
  • Samfélagið (82)
  • Sjávarútvegsmál (20)
  • Skólamál (3)
  • stjórnlagaþing (1)
  • Stjórnmál (146)
  • stjórnsýsla (9)
  • Sveitarstjórnarmál (5)
  • Umhverfismál (5)
  • Uncategorized (3)
  • Utanríkismál (14)
  • Viðskipti (36)
  • Eyjan að upphafssíðu
  • Auglýstu á Eyjunni

Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Lúgan

Undirvalmynd

  • Lúgan
Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar

Eyjan - Smáratorgi 3, Kópavogi - eyjan@eyjan.is

  • Um Eyjuna
  • Auglýsingar