Netfangið er: lugan@eyjan.is
Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.
Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Nú er skýrslan komin. Þá vitum við það. Þjóðin var höfð að ginningarfífli. Bankarnir voru þjófabæli. Hinir háloflegu dýrðramenn viðskiptalífsins voru loddarar, lukkuriddarar og þjófar. Það er ekki furða, þótt menn séu sárhryggir og þyki „dimmt í sveitum og hnípin þjóð í vanda.“ Furðulegt er að lesa um óstjórnina í bönkunum og ráðaleysi stjórnmálamanna. Um „Þriðja ríki Hitlers var sagt, að það hafi verið „orgnisiertes Chaos“, þ.e.a.s skipulögð ringulreið. Vissulega höfum við hér enn eina hliðstæðinu við þá þýsku sorgarsögu. Í íslensku bönkunum voru háskólamenntaðir menn á ofurlaunum við að reikna þjóðina út á vergang. Betur að þekking þeirra hefði nýst til uppbyggilegri starfa.
En fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Í fyrsta lagi eru fáar þjóðir heims eins vel upplýstar um peningamál og fjárglæfra eins og Íslendingar, sem ættu nú með sameinuðu átaki að vera í stakk búnir til þess að koma upp regluverki og hafa hemil á guðinum Mammon, sem margir hafa eftir sem áður mætur á.
Í öðru lagi gefur skýrslan innsýn í það sem hinir fornu Rómverjar kölluðu „Arcana Imperii“, sem á þýsku er nefnt „Herrschaftswissen, þ.e.a.s. innsýn í innviði valdakerfisins og hvernig hentugt er að leikar á það.
Í þriðja lagi eru menn farnir að tala um gildi siðfræði og siðareglna. Jafnvel börn og unglingar eru farin að velta fyrir sér siðfræðilegum spursmálum. Þetta veit á gott.
Á undanförnum áratugum hafa menn í miklum mæli rætt og ritað um gildi menntunar, einkanlega þeirrar, sem gefur peninga í aðra hönd. Ég er smeyk um, að menn hafi ruglað saman menntun og sértækri þekkingu eða færni. Að menntast merkir að læra að vera maður, enda er orðið menntun dregið af orðinu maður. Spurningin er, hvað er ákjósanlegt menntunarefni? Í bönkunum sat fjöldi langskólagenginna manna, sem með afleiðum og háþróuðum reikningskúnstum komu þjóðinni á vonarvöl. Að maður tali ekki um þá þekkingu, sem við var höfð til þess að markaðsetja vitleysuna, sem fékk heila þjóð til þess að taka dómgreindina úr sambandi og skuldsetja sig eins og aldrei kæmi að skuldadögum. Betra hefði verið að allt þetta fólk hefði heldur lært guðfræði og heimspeki; þá værum við ekki í dag í þeim sporum, sem við eru nú í.
Ég tek undir með Evu Joly, sem hvetur útrásarvíkingana, sem sitja nú í dauflegri vist í lúxúsvillum sínum í London og Sviss að gefa sig fram, skila þýfinu , hjálpa til við rannsókn hrunsins og uppbyggingu skynsamlegs samfélags. Þá fá þeir kannski mildari dóma. Þessi menn eru reyndar ekki öfundsverðir. Þegar fram líða stundir geta þeir ekki einu sinni komið heim til þess að vera við jarðarför ömmu sinnar af því þeir eiga handtökuskipun yfir höfði sér.
Þokkalegt ríkidæmi það!!!