Þínar fréttir, þín skoðun






7.4 2010 - Ummæli ()

Landspítali eða Háskólasjúkrahús?

Höfundur: Örn Þór Halldórsson, - arkitekt faí,
Flokkur: Borgarskipulag, Heilbrigðismál  

Nú er lokið forvali á þeim hönnunarhópum sem munu taka að sér að gera tillögur að stækkun Landspítala-Háskólasjúkrahúss við Hringbraut.

Verkefnið, sem á sér langa forsögu byggir á þeim hugmyndum að öll starfssemi Landspítalans verði sameinuð á einum stað við Hringbraut. Borgarspítalinn verði hinsvegar lagður niður, jafnvel rifinn, og lóðin seld.

Töluvert hefur verið rætt og ritað um þessa fyrirhuguðu framkvæmd og sitt sýnist hverjum. Ýmist fordæma menn þessa ákvörðun eða hefja hana upp til skýjana.

Fyrir u.þ.b. 10 árum var gerð ítarleg úttekt á húsnæðisþörf Landspítalans. Að verkinu kom danska ráðgjafafyrirtækið Ementor, sem skilaði í kjölfarið umfangsmikilli skýrslu, sem kölluð hefur verið Ementor-skýrslan. Meginniðurstaða þeirrar vinnu var sú, að stækkun Borgarspítalans væri vænlegasti kosturinn, hvort sem um væri að ræða sameinuð sjúkrahús, eða þau áfram rekin á báðum stöðum, við Hringbraut og í Fossvogi. Sjálfsagt væri að nota mikið af húsnæðinu við Hringbraut áfram, og þar sem svo stutt væri á milli þessara tveggja staða væri hægt að líta á þessar tvær lóðir sem eina. Að vísu þyrfti fleiri nýbyggingar í Fossvoginum, en Borgarspítalinn var hinsvegar talinn henta mun betur til viðbyggingar en hinn ósamstæði húsakostur Landspítalans við Hringbraut. Fjarlægðin frá Háskóla Íslands var ekki talin skipta máli.

Í skýrslunni var lagt til, að byrjað yrði á sameiningu hinna s.k. sómatísku bráðadeilda í Fossvogi, auk þjónustudeilda. Í kjölfarið var sænsku ráðgjafafyrirtæki, White-arkitektum falið að gera úttekt á möguleikum þessara tveggja lóða, auk lóðarinnar við Vífilsstaði, sem á þeim tíma kom einnig sterklega til greina.

Ljóst er, að sú niðurstaða nefndar þáverandi heilbrigðisráðherra, að Landspítalinn verði sameinaður á einni lóð við Hringbraut, var því ekki að öllu leyti í samræmi við ráðgjöf þeirra sérfræðinga, sem að málinu komu. Vísað var í, að Borgarskipulag hafi eindregið hvatt til staðsetningar við Hringbraut, m.t.t. þéttingar miðbæjarins, þó ekki finnist neinar faglegar skýrslur eða úttektir, sem gætu legið til grundvallar því áliti. Reyndar orkar það tvímælis, þar sem löngu var ljóst að mikið misvægi væri milli fjölda íbúða og fjölda starfa í vestari hluta borgarinnar og nauðsyn bæri til að nota öll tækifæri til að fjölga íbúðum í vesturhlutanum og flytja störf í austurborgina til þess að jafna misvægið og draga þannig markvist úr óþörfum akstri á mili borgarhluta.

Nálægðin við Háskóla Íslands virðist hinsvegar hafa vegið þyngst. Tengist það hugmyndum um hið svokallaða “þekkingarþorp” í Vatnsmýrinni, þar sem návígi þekkingargreina, helst í göngufæri, skapi ný tækifæri.

Önnur meginrök snéru að hagkvæmni. Var það m.a. byggt á úttekt VSÓ frá 2002, þar sem bornir voru saman helstu kostnaðarliðir, auk söluverðmætis einstakra lóða. Sú skýrsla virðist hinsvegar ekki hafa tekið á öðrum samfélagslegum kostnaði, s.s. vegna samgöngumannvirkja. En líklega þarf að ráðast í viðamiklar framkvæmdir, m.a. með stokkalausnum og nýjum göngum undir Öskjuhlíð, ef ekki á að skapast viðvarandi umferðaröngþveiti við Miklubraut og Bústaðaveg, sem nú eru fullnýttar á álagstímum. Engar umferðaspár eru aðgengilegar vegna staðarvalsins, en vísað í áherslur á notkun almenningssamgangna og reiðhjóla, auk breytinga á vaktafyrirkomulagi.

Einnig hefur reynst erfitt að finna upplýsingar um hagkvæmni þess að nýta áfram svo stóran hluta hins lágreista og ósamstæða húsakosts Hringbrautar. En velþekkt er sú staðreynd, að kostnaður vegna endurbóta og breytinga á eldra húsnæði á það til að rjúka upp úr öllu valdi, oft langt framúr nýbyggingarkostnaði. Þeir 9-11 miljarðar, sem nú er ætlaðar í endurbætur gætu því margfaldast. Því þarf að bera saman kosti þess að móta nýtt og hagkvæmt hús utan um þá sömu starfsemi.

Flestum er það ljóst að lóðin við Hringbraut er á viðkvæmum stað, nálægt elsta hluta borgarinnar. Þær áætlanir, að byggja meginkjarna sjúkrahússins í miðju göturými gömlu Hringbrautar, eru því ekki líklegar til vinsælda, enda nokkuð almenn samstaða um að vernda hana, í samræmi við þróunaráætlun miðborgar frá 2000. Gatan á rætur sínar í einu elsta skipulagi Reykjavíkur og er aðalbygging Háskóla Íslands m.a. staðsett í m.t.t. hennar. Gamla Hringbrautin þjónar einnig enn sínu hlutverki sem safngata og tengibraut fyrir miðbæinn og hverfin í kring og mun mikilvægi hennar aukast í framtíðinni. Það yrði því mikill skaði ef umferð um hana yrði hindruð eins og áætlanir eru uppi um.

Þeir arkitektar sem taka að sér að hanna nýjan spítala í þessu umhverfi munu því takast á við flókið og krefjandi verkefni. Það gerir málið enn flóknara að meginhluti bílastæða skuli verða ofanjarðar, ólíkt fyrri yfirlýsingum. Yfirbragð þessa verðmæta byggingarlands í 101 Reykjavík gæti því fljótlega farið að minna á Korputorg, ef ekki er haldið rétt á spöðunum.

Eru aðrir kostir í stöðunni?

Eins og áður hefur verið bent á, var í upphafi lagt til að framtíðaruppbygging yrði í Fossvoginum. Hluti starfseminnar gæti þó áfram verið við Hringbraut. Fjölmargar greinar hafa verið birtar um málið, bæði í Læknablaðinu og almennum fjölmiðlum. Fyrir nokkru birtist grein í Morgunblaðinu eftir Ingólf Þórisson framkvæmdastjóra eignasviðs Landspítalans og Jóhannes M. Gunnarsson, læknisfræðilegan verkefnisstjóra uppbyggingarinnar, þar sem m.a. var farið yfir forsendur staðarvalsins og ítrekað að ákvörðun hafi verið fyrir löngu tekin “af þar til bærum aðilum”, og væntanlega vísað í staðarvalsnefnd þáverandi heilbrigðisráðherra, sem annar greinarhöfunda átti sæti í.

Við lestur greinarinnar vekur það athygli, að því er haldið fram að lóðin í Fossvogi sé úr myndinni, m.a. vegna erfiðra tenginga við stofnbrautir. Í raun virðist þessu öfugt farið, því nálægðin við allar meginæðar höfuðborgarinnar og þungamiðju útkalla sjúkrabíla er mjög áberandi, ólíkt Hringbrautinni (sjá skýringarmynd hér fyrir neðan) . Einnig er því haldið fram að lóðin rúmi ekki sameinaðan spítala, enda nýverið minnkuð og hluta hennar úthlutað til annarra nota. Við nánari skoðun kemur hinsvegar í ljós að öll framtíðaruppbygging Landspítalans gæti rúmast þar og vel það. Með smávægilegri útsjónarsemi væri jafnvel hægt að skapa þar svæði fyrir 30.000 m2 “þekkingarmiðstöð” háskólanna, auk íbúða fyrir námsmenn, starfsfólk, eða jafnvel sjúklingahótel. Í fyrstu áföngum væri hægt að koma öllum bílastæðum fyrir ofanjarðar, en byggja síðan yfir fleiri stæði síðar, verði þess þörf.

m1

Lóðin við Fossvog er á margan hátt tilvalin til slíks stórhýsis, enda verður byggingin ekki yfirþyrmandi í umhverfi sínu, þökk sé landhallanum og stærðarhlutföllum aðliggjandi byggðar til vesturs. Staðsetning gamla Borgarspítalans og hönnun hans er því engin tilviljun, og því mikill skaði ef hann þarf að víkja.

Meðfylgjandi tillögur sýna hvernig áframhaldandi uppbygging á lóðinni gæti litið út. Áfangaskiptingin er hugsuð m.t.t. núverandi bráðadeilda. Svipaðar tillögur hafa áður birst, en nýbreytnin felst m.a. í þvi að gert er ráð fyrir álmum til suðurs, auk “þekkingarmiðstöðvar” við Bústaðaveg og íbúða á austurhluta lóðarinnar. Aðkoma bráðabíla yrði um ný gatnamót austar á Bústaðavegi, svo ekki þarf lengur að aka um íbúðagötur. Dagheimilið, sem stendur í þessu vegstæði í dag yrði fært neðar í skógivaxin dalinn, fjær umferðinni.

Tilgangur þessara tillagna er að sýna einn að þeim fjölmörgu möguleikum, sem enn felast í uppbyggingu á lóðinni við Fossvog. Eftir stendur fjarlægðin frá Háskóla Íslands, sem sumum er þyrnir í augum en öðrum ekki. Hvort áframhaldandi rekstur sjúkrahúss í Fossvoginum muni valda “stórskaða á faglegu starfi” skal því ósagt látið.

Í þessari grein eru aðrir möguleikar ekki skoðaðir sérstaklega. Hvorki Vífilsstaðir né Keldur. Færð hafa verið ýmis góð rök fyrir þeim kostum og sjálfsagt að halda þeim enn opnum. Hægt væri að líta á þessar hugleiðingar sem einn leik í stöðunni og fylgja þannig ráðum Ementor. Reka spítalana áfram á báðum stöðum, en haga starfseminni þannig að samlegðaráhrifin yrðu sem mest. Sú lausn kæmi til móts við þau sjónarmið sem benda á þá áhættu sem er í því fólgin að byggja aðeins upp einn spítala á höfuðborgarsvæðinu.

Þegar betur árar og framtíð flugvallarins orðin ljós, væri hægt skoða hlutina upp á nýtt.

m2

m3

m4

m5

m6

m7

Höfundur greinarinnar er stundarkennari í arkitektúr við LHÍ og fyrrum verkefnastjóri skipulagsmála Vatnsmýrar hjá Skipulagssviði Reykjavíkurborgar.



« Síðasta þorskastríðið
Stjórnlagaþing »

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Nýtt inn um lúguna

  • Jólasýning Þjóðleikhússins
  • Skömm Ríkisútvarpsins
  • Gráir fyrir járnum á Gaza
  • Sameiningartákn þjóðar
  • Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.
  • Afleit stærðfræði
  • Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
  • Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Facebook

Flokkar

  • Atvinnumál (18)

  • Aðsendar greinar (5)
  • Borgarskipulag (3)
  • Efnahagsm (7)
  • Efnahagsmál (59)
  • ferðaþjónusta (2)
  • Fjármál (23)
  • Fjölmiðlar (10)
  • Heilbrigðismál (18)
  • Húsnæðismál (5)
  • Húsvernd (2)
  • Ítalía (2)
  • Jafnréttismál (2)
  • Ljóð (1)
  • Lögfræði (7)
  • Óflokkað (15)
  • Rannsóknarskýrslan (3)
  • Rekstur (4)
  • Saga (8)
  • Samfélagið (82)
  • Sjávarútvegsmál (20)
  • Skólamál (3)
  • stjórnlagaþing (1)
  • Stjórnmál (146)
  • stjórnsýsla (9)
  • Sveitarstjórnarmál (5)
  • Umhverfismál (5)
  • Uncategorized (3)
  • Utanríkismál (14)
  • Viðskipti (36)
  • Eyjan að upphafssíðu
  • Auglýstu á Eyjunni

Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Lúgan

Undirvalmynd

  • Lúgan
Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar

Eyjan - Smáratorgi 3, Kópavogi - eyjan@eyjan.is

  • Um Eyjuna
  • Auglýsingar