Þínar fréttir, þín skoðun






6.4 2010 - Ummæli ()

Síðasta þorskastríðið

Höfundur: Sandra Björk Jóhannsdóttir - viðskiptalögfræðingur
Flokkur: Sjávarútvegsmál, Stjórnmál  

Við Íslendingar stöndum í stríði. Við stöndum frammi fyrir að missa margar af okkar verðmætustu auðlindum. Sem þjóð ber okkur öllum að standa vörð um sameiginlega hagsmuni okkar. Sú vá sem við stöndum frammi fyrir er þó ekki vegna ágangs erlendra ríkja sem ásælast auðlindir okkar og verðmæti, heldur stöndum við frammi fyrir skefjalausri græðgi einstaklinga og fyrirtækja sem vilja að auðlindum okkar verði afsalað úr höndum þjóðarinnar í þeirra hendur til frambúðar. Við stöndum frammi fyrir því að allar sameiginlegar auðlindir okkar geti í framtíðinni lent í einkaeigu. Nú hafa Ungir Sjálfstæðismenn tekið af skarið og krefjast þess að íslenska þjóðin afsali sér endanlega yfirráðum yfir sameiginlegri auðlind landsmanna, nytjastofnunum á Íslandsmiðum. Í ályktun sem SUS hefur nú sent frá sér kemur fram að hagsmunum þjóðarinnar sé best borgið með því að útvegsmönnum verði afhentar auðlindir sjávar og að einstaklingseignarréttur þeirra yfir auðlindinni verði viðurkenndur sem fyrst!

Nú er svo komið að þjóðin getur ekki látið bjóða sér þessa ógeðfelldu ránsherferð lengur. Herferð þar sem greipar hafa verið látnar sópa um stærstu sameiginlegu verðmæti þjóðarinnar. Herferð sem ekki sér fyrir endann á fyrr en þjóðin rís upp og krefst þess að fá úrskurðarvaldið yfir örlögum sínum og hagsmunum, enda hefur Alþingi sannað að það er óhæft til þess að fara með málefni sameiginlegra auðlinda landsmanna fyrir þjóðina alla.

Við Íslendingar þurftum að heyja hatramma baráttu fyrir sjálfstæði og valdi yfir auðlindum okkar. Stór hluti af sjálfstæði okkar felst í valdi yfir auðlindum okkar. Látum engan svipta okkur þessum sameiginlegu áunnu forréttindum baráttulaust. Tökum afstöðu með framtíð og frelsi íslensku þjóðarinnar. Ég skora á alla þjóðholla Íslendinga hvar í flokki sem þeir standa til að krefjast þess að kvótakerfið verði sett í dóm þjóðarinnar í almennri þjóðaratkvæðagreiðslu. Stofnuð hafa verið samtök sem standa fyrir víðtækri undirskriftasöfnun á netinu, sem heita Þjóðareign – Samtök um auðlindir í almannaþágu. Ég hvet alla Íslendinga til þess að fara inn á síðu þeirra og skrifa undir áskorun um að framtíð kvótakerfisins verði sett í þjóðaratkvæðagreiðslu. Slóðin er www.þjóðareign.is



« Hættum að hindra ferðamenn í að koma til Íslands
Landspítali eða Háskólasjúkrahús? »

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Nýtt inn um lúguna

  • Jólasýning Þjóðleikhússins
  • Skömm Ríkisútvarpsins
  • Gráir fyrir járnum á Gaza
  • Sameiningartákn þjóðar
  • Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.
  • Afleit stærðfræði
  • Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
  • Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Facebook

Flokkar

  • Atvinnumál (18)

  • Aðsendar greinar (5)
  • Borgarskipulag (3)
  • Efnahagsm (7)
  • Efnahagsmál (59)
  • ferðaþjónusta (2)
  • Fjármál (23)
  • Fjölmiðlar (10)
  • Heilbrigðismál (18)
  • Húsnæðismál (5)
  • Húsvernd (2)
  • Ítalía (2)
  • Jafnréttismál (2)
  • Ljóð (1)
  • Lögfræði (7)
  • Óflokkað (15)
  • Rannsóknarskýrslan (3)
  • Rekstur (4)
  • Saga (8)
  • Samfélagið (82)
  • Sjávarútvegsmál (20)
  • Skólamál (3)
  • stjórnlagaþing (1)
  • Stjórnmál (146)
  • stjórnsýsla (9)
  • Sveitarstjórnarmál (5)
  • Umhverfismál (5)
  • Uncategorized (3)
  • Utanríkismál (14)
  • Viðskipti (36)
  • Eyjan að upphafssíðu
  • Auglýstu á Eyjunni

Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Lúgan

Undirvalmynd

  • Lúgan
Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar

Eyjan - Smáratorgi 3, Kópavogi - eyjan@eyjan.is

  • Um Eyjuna
  • Auglýsingar