Þínar fréttir, þín skoðun






19.11 2009 - Ummæli ()

Ungt fólk, skóli og atvinnuleysi

Höfundur: Sigurlaug Hauksdóttir - Grísará 1, Eyjafjarðarsveit
Flokkur: Atvinnumál, Skólamál   Efnisorð: atvinnuleysi, námsfólk, Vinnumálastofnun

Elsti sonur okkar, fæddur 1988, er smiður með sveinspróf, hann missti vinnuna sl. vor ásamt svo mörgum öðrum í byggingariðnaðinum, og var atvinnulaus á bótum sl. sumar. Að áeggjan foreldra sinna skráði hann sig í framhaldsskóla núna sl. haust og hefur verið í fullu námi, hann að sjálfsögðu lét Vinnumálastofnun vita af þessu og hefur verið tekjulaus síðan og hefur lifað á sparnaði sínum og stuðningi okkar í formi frís húsnæðis og fæðis. Hann sér um sig sjálfur að öðru leyti og rekur m.a. bifreið sína, afgamla skuldlausa Toyotu. Nú bregður svo við að hann á einungis 4 áfanga eftir til stúdentsprófs og 3 af þessum áföngum eru í boði fyrir hann á vorönn. Og hann er að verða auralaus.

Hann leitaði því til Vinnumálastofnunar til að kanna hvað hann gæti gert í stöðunni. Þar var honum tjáð að hann hefði engan rétt bóta ef hann skráir sig í fleiri en einn áfanga í dagskóla, hann gæti hins vegar skráð sig í þessa áfanga í fjarnámi! Nú hafa verið fréttir um það að til stæði að skerða bætur ungs atvinnulauss fólks í foreldrahúsum, og að í félagsmálaráðuneytinu væru nú til skoðunar leiðir til að virkja atvinnulaus ungmenni og koma í veg fyrir að þau verði óvirkir samfélagsþegnar vegna langvarandi atvinnu- og aðgerðaleysis. Já, gott og þarft mál segi ég, er alveg sammála því að ungt fólk í foreldrahúsum þarf ekki jafn háar bætur og t.d. atvinnulaust fólk sem hefur fyrir fjölskyldu að sjá.

En, hvernig samræmist þetta þeim svörum sem sonur minn fær hjá Vinnnumálastofnun? Þar er honum refsað fyrir að vera virkur samfélagsþegn. Vinnumálastofnun vill frekar að hann koðni niður heima fyrir framan tölvuna takandi þessa þrjá áfanga í dýru fjarnámi en að hann vakni á morgnana og drífi sig af stað í skólann og taki þar þátt í mannlegu samfélagi!

Og þetta er ekki nóg, skv. upplýsingum sem mörg ungmenni fengu sl. haust frá vinnnumálastofnun þá var þeim tjáð að þau gætu tekið 6 einingar án þess að missa bætur. Fólk mætti í skólana og skráði sig í 6 einingar, oft 2-3 áfanga, en komst svo að því að einungis mátti taka einn áfanga, óháð einingafjölda hans. Þá streymdi þetta fólk aftur inn í skólana og skráði sig úr öllu nema einum áfanga, og sumum féllust bara alveg hendur og hættu! Þetta semsagt ýtti undir margfrægt brottfall í framhaldsskólum landsins.

Ég er reið og vonsvikin fyrir hönd sonar míns. Hann hefur sýnt það að hann vill gera eitthvað með líf sitt annað en að sökkva í eitthvert sinnuleysi í einangrun heima hjá sér, en það er sama hvernig hann snýr sér, hann hefur enga möguleika til nokkurra einustu tekna taki hann áfangana í dagskóla. Afar takmarkað framboð er af vinnu með skóla og honum hefur ekki tekist að verða sér út um slíka vinnu, enda yfirleitt ekki í boði nema í kunningja/ættinga samfélaginu, sem þéttist enn frekar á tímum sem þessum. Nám hans er ennfremur ekki hæft til námslána, hefði hann hins vegar verið að bæta á sig húsasmíðinni (sem hann byrjaði á í framhaldsskóla) þá hefði hann þó getað sótt um námslán.

Nú viljum við foreldrar hans að sjálfögðu standa við bakið á honum eins og okkur er framast kleyft, en við erum þessir dæmigerðu meðaljónar sem standa undir flestu í þessu samfélagi, þ.e. hjón á miðjum aldri með meðaltekjur og unglinga/ungt fólk á heimilinu, og skuldum að sjálfsögðu helling í húsinu okkar líka eins og flestallir aðrir meðaljónar. Og það reynist okkur sannast sagna erfitt að styðja son okkar fjárhagslega, á annan hátt en með fríu húsnæði og fæði, í því árferði sem nú er. Og okkur þykir þyngra en tárum taki að verið sé að dæma son okkar nauðugan til einangrunar og aðgerðarleysis heima hjá sér.

Það á að virkja atvinnulaust fólk á þessum aldri og skynsamlegast er að nýta framhaldsskóla landsins til þess. Gefa þessu unga fólki kost á t.d. hálfu námi á móti hálfum bótum. Það er nógu mikið nám til þess að þau þurfa að vakna flesta morgna til að fara í skólann, og haldast virk í samfélaginu. Að þetta sé a.m.k valkostur á móti tímabundnum hlutastörfum, námskeiðum og öðru sem vinnumálastofnun býður.



« Kraftur Athafnateygjunnar
Þjóðlífsþankar: Súludans »

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Nýtt inn um lúguna

  • Jólasýning Þjóðleikhússins
  • Skömm Ríkisútvarpsins
  • Gráir fyrir járnum á Gaza
  • Sameiningartákn þjóðar
  • Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.
  • Afleit stærðfræði
  • Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
  • Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Facebook

Flokkar

  • Atvinnumál (18)

  • Aðsendar greinar (5)
  • Borgarskipulag (3)
  • Efnahagsm (7)
  • Efnahagsmál (59)
  • ferðaþjónusta (2)
  • Fjármál (23)
  • Fjölmiðlar (10)
  • Heilbrigðismál (18)
  • Húsnæðismál (5)
  • Húsvernd (2)
  • Ítalía (2)
  • Jafnréttismál (2)
  • Ljóð (1)
  • Lögfræði (7)
  • Óflokkað (15)
  • Rannsóknarskýrslan (3)
  • Rekstur (4)
  • Saga (8)
  • Samfélagið (82)
  • Sjávarútvegsmál (20)
  • Skólamál (3)
  • stjórnlagaþing (1)
  • Stjórnmál (146)
  • stjórnsýsla (9)
  • Sveitarstjórnarmál (5)
  • Umhverfismál (5)
  • Uncategorized (3)
  • Utanríkismál (14)
  • Viðskipti (36)
  • Eyjan að upphafssíðu
  • Auglýstu á Eyjunni

Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Lúgan

Undirvalmynd

  • Lúgan
Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar

Eyjan - Smáratorgi 3, Kópavogi - eyjan@eyjan.is

  • Um Eyjuna
  • Auglýsingar