Netfangið er: lugan@eyjan.is
Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.
Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Mann setur hljóðan að heyra um frekari niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Talað er um allt að 400 starfsmönnum verði sagt upp á næsta ári á LSH. Væntanlega fer meirihlutinn á atvinnuleysisbætur. Fróðlegt verður að sjá hvað sparast þegar upp er staðið þar sem heilbrigðisstörf eru yfirleitt láglaunastörf. Er ekki skynsamlegra að nýta vinnukraftinn til að sinna sjúkum og deyjandi fyrir nokkrar krónur aukalega? Er ekki skynsamlegra að hlúa að félagslegum og sálrænum þáttum þurfandi í kreppu frekar en að stuðla að aukinni vansæld sem fylgir atvinnuleysi? Rekstur heilbrigðiskerfisins er og á að vera til að viðhalda heilbrigði og lækna sjúka. Hvernig má það vera að flatur niðurskurður á veikt heilbrigðiskerfi, langt út fyrir ramma hagræðingar, sé þjóðhagslega hagkvæm aðgerð?
Í stað neikvæðrar umræðu stjórnvalda um niðurskurð ættu þau frekar að hvetja til að blásið verði í herlúðra í grasrótinni til aukinnar hagræðingar og aukinna afkasta. Þar liggur mannauðurinn og þekkingin á því hvað má betur fara. Flestir eru tilbúnir til að leggja harðar að sér fyrir óbreytt laun ef markmiðin eru skýr, hvetjandi og tímabundin.
Um síðustu helgi hélt Félag íslenskra heimilislækna helgarþing um gæðaþróun innan heilsugæslunnar og hvar mætti spara. Ýmsar góðar tillögur komu fram hjá félagsmönnum. Á sama tíma hafa stjórnvöld samt skorið niður í heilsugæslunni með flötum niðurskurði á vinnu heimilislækna og verkefnum þannig ýtt á dýrari þjónustustig og skyndivaktir í vaxandi mæli, á kvöldin og um helgar.
Er hægt að ætlast til að læknar fari eftir klínískum leiðbeiningum m.a. varðandi lyfjaávísanir þegar leiðbeiningarnar miða við allt annað vinnuumhverfi þar sem eftirfylgni, ráðgjöf og fræðsla er höfð að leiðarljósi? Lyfjasparnaður næst tæpast þannig auk þess sem óöryggi sjúklinga leiðir til enn meiri þjónustuþarfar. Ég skora nú á nýjan heilbrigðisráðherra að svara bréfi til forverans frá því í febrúar og sem sá ekki ástæðu til að svara en sjá má það á bloggsíðu minni á blog.is