Þínar fréttir, þín skoðun






25.9 2009 - Ummæli ()

Mogginn og Davíð

Höfundur: Ámundi Loftsson
Flokkur: Fjölmiðlar, Stjórnmál   Efnisorð: Davíð Oddsson, Morgunblaðið

Eftir fall austurblokkarinnar hefur Mogginn staðið flestum sjónarmiðum nokkuð opinn, verið umburðarlyndur og víðsýnn.  Fjölmiðill af þessu tagi er nauðsynlegur og tryggir hlutlausa, óháða og  lýðræðislega umræðu.  Þess vegna eru það ill tíðindi að Davíð Oddsson einhver umdeildasti einstaklingur hér á landi, fyrr og síðar skuli hafa verið valinn til að ritstýra þessum annars ágæta miðli.  Nægir þar að minna á að hér er um að ræða manninn sem fann upp orðið „Baugsmiðlar“ og undirstrikar með því að fjölmiðlar séu handbendi eigendanna þeirra og annarra áhangenda s.s. stjórnmálaflokka og ýmissa hagsmunaaðila. 

Hér er á ferð fyrrum forsætisráðherra sem bar fram frumvarp á Alþingi sem átti að þrengja að möguleikum í rekstri fjölmiðlanna,  allt til að tryggja hlutleysi þeirra.  Hverjum er ekki ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn og reyndar þjóðfélagið allt var Davíð Oddsyni sem hvert annað strengbrúðuleikhús meðan hann sat að völdum?  Eru menn búnir að gleyma skipun Þorsteins Davíðssonar í Héraðsdóm Norðurlands, svo dæmi sé tekið? Þar opinberaðist þjóðinni  dæmi um lausagöngu valds,  drottnunar sem undirsátar lúta í hlýðni án þess að mögla.  Þetta var einhver aumasta birtingarmynd smámennsku allra þeirra sem í hlut áttu. 

Davíð Oddsson er ekki merkisberi hlutleysis.  Hann er fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins, borgarstjóri hans og forsætisráðherra til áratuga og aukinheldur handbendi mikilla sérhagsmuna.  Með tilkomu hans sem ritstjóra Morgunblaðsins hefur það glatað hlutleysi sínu og trúverðugleik. Hér eftir skrifa ég mogginn með litlum staf.



« Hvað ber að gera?
Hvað hindrar gagnsæi? »

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Nýtt inn um lúguna

  • Jólasýning Þjóðleikhússins
  • Skömm Ríkisútvarpsins
  • Gráir fyrir járnum á Gaza
  • Sameiningartákn þjóðar
  • Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.
  • Afleit stærðfræði
  • Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
  • Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Facebook

Flokkar

  • Atvinnumál (18)

  • Aðsendar greinar (5)
  • Borgarskipulag (3)
  • Efnahagsm (7)
  • Efnahagsmál (59)
  • ferðaþjónusta (2)
  • Fjármál (23)
  • Fjölmiðlar (10)
  • Heilbrigðismál (18)
  • Húsnæðismál (5)
  • Húsvernd (2)
  • Ítalía (2)
  • Jafnréttismál (2)
  • Ljóð (1)
  • Lögfræði (7)
  • Óflokkað (15)
  • Rannsóknarskýrslan (3)
  • Rekstur (4)
  • Saga (8)
  • Samfélagið (82)
  • Sjávarútvegsmál (20)
  • Skólamál (3)
  • stjórnlagaþing (1)
  • Stjórnmál (146)
  • stjórnsýsla (9)
  • Sveitarstjórnarmál (5)
  • Umhverfismál (5)
  • Uncategorized (3)
  • Utanríkismál (14)
  • Viðskipti (36)
  • Eyjan að upphafssíðu
  • Auglýstu á Eyjunni

Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Lúgan

Undirvalmynd

  • Lúgan
Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar

Eyjan - Smáratorgi 3, Kópavogi - eyjan@eyjan.is

  • Um Eyjuna
  • Auglýsingar