Þínar fréttir, þín skoðun






26.7 2009 - Ummæli ()

Þjóðlífsþankar: Samþykki óskast

Höfundur: Guðrún Guðlaugsdóttir blaðamaður og rithöfundur
Flokkur: Efnahagsmál, Samfélagið, Stjórnmál, Utanríkismál   Efnisorð: Icesave

Æskilegt væri að þingmenn hættu að hugsa um sjálfa sig og flokka sína og færu að hugsa um íslensku þjóðina sem heild og hagsmuni hennar. Ef Icesavesamningarnir verða felldir þá horfir verulega illa fyrir okkur öllum. Það er sama hvernig þessu máli er snúið, enginn kostur er góður. Illskástur kostur er að samþykkja þessa samninga og hætta ekki á að þeir verði gerðir ógildir með fyrirvörum.

Þeir sem lofað hafa okkur lánum verða án efa fegnari en harðskeyttustu íslenskir andstæðingar þessara samninga til samans ef þeir verða felldir. Þá eru þeir sem lofuðu okkur lánum lausir allra mála og þurfa ekki að hjálpa okkur. Það kæmi sér ábyggilega vel, allir hafa nóg við sína peninga að gera núna. Það er kreppa víðar en á Íslandi. Það þýðir ekki að vera í afneitun, ástandið er afleitt. Og það skánar ekki hót þótt við múðrum. Við höfum komið okkur í þessi vandræði með samblandi af trúgirni, græðgi og andvaraleysi og verðum að koma okkur úr því. Það kostar fórnir.

Það dugir heldur ekki að óskapast út í aðrar þjóðir. Af hverju skyldu menn í öðrum löndum vorkenna okkur þótt við höfum hagað okkur flónslega? Hefur fólk hér misst svefn yfir fjárhagsvandræðum sem aðrar þjóðir hafa komið sér í? Ekki hef ég orðið vör við það. Satt að segja sýnist mér íslenska þjóðin haga sér að mörgu leyti eins ofdekrað barn. Það hefur hún raunar lengi gert. Vegna þeirrar trúar að landið væri svo hernaðarlega mikilvægt höfum við talið að við gætum fengið öllu mögulegu framgengt okkur í hag. En sú tíð er greinilega liðin. Það er ekki um að villast, ofdekraða barnið hefur misst sérsamning sinn. Við erum ekki lengur í skjóli eins eða neins. Meira að segja Norðurlöndin hin munu yfirgefa okkur ef við fellum Icesavesamningana. Og þá er nú fokið í flest skjól.

Ég býð ekki í tilveruna hér ef engin lán fást og við eigum að bjarga okkur hér peningalaus og stórskuldug. Sennilega verður viðbragðið að storma niður á Austurvöll og kalla þar og hrópa. En ég sé ekki að það þýði mikið. Enginn mun heyra þau hróp og þótt aðrar þjóðir hefðu heyrn eins og þunnt móðureyra þá skortir þær nú algjörlega hina móðurlegu ást. Við verðum bara úskúfuð og einangruð, skítblönk og enn reiðari en við erum nú. Því miður, hvernig sem málinu er snúið þá er þetta bara svona.

Þetta er líka  fordæmismál. Alþjóðasamfélagið getur einfaldlega ekki liðið að við borgum ekki skuldir sem forráðamenn okkar lýstu okkur ábyrg fyrir rétt eftir bankahrunið. Við eigum ekki annars kost en semja. Og þótt við hikum og frestum fáum við alveg ábyggilega ekki samninga sem verða okkur hagstæðari þegar upp væri staðið. Þetta er mjög leiðinlegt allt saman. En á sama hátt og vissa er betri en óvissa er heppilegra að horfast í augu við staðreyndir eins og þær eru. Til þess þarf kjark og þor. Ekki undanbrögð og óskhyggju. Þegar illa árar, hvort sem það er í einkalífi eða þjóðlífinu, er áleitin hugsun að eiga þann möguleika að allt sé í lagi. Sjaldnast er sá möguleiki fyrir hendi og alls ekki nú. Sálfsblekking leiðir ekki til neins nema aukinna vandræða.

Sumt fólk telur að þetta mál kljúfi ríkisstjórnina og felli hana. Af hverju ætti það að gerast? Sík niðurstaða er í hæsta máta ólíkleg. Ef þingmenn fella þennan margumtalaða samning þá verður bara skipuð ný nefnd. Og hversu ágætir menn sem í henni sætu þá ættu þeir við sömu aðila að etja við samningsgerðina -  nema að þeir væru orðnir mun illvígari en áður vegna þess að þeir telja sig þegar hafa komið verulega til móts við okkar sjónarmið. Þetta er staðreynd – þótt ýmsum virðist sjást yfir hana eða vilji ekki sjá hana. Ekkert bendir því til að útkoman yrði betri þegar upp væri staðið. Í millitíðinni myndum við hins vegar missa fjölda fólks út landi og verða æ skuldugri.

Persónulega hefur mér alltaf fundist talsvert vit í málshættinum að einn fugl í hendi sé betri en hundrað í skógi. Við myndum kannski lifa það af að fella þessa samninga – en það yrði hundalíf – sem stæði mun lengur en ef Icesavesamningarnir væru samþykktir – með sinni miklu áskorun okkur til handa.

Kæru þingmenn, hvar í flokki sem þið standið. Samþykkið þessa samninga svo við lendum ekki enn meiri vandræðum.



« 300 milljarða mistök í Icesave-samningum
Fjölmiðlar og bankaleynd »

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Nýtt inn um lúguna

  • Jólasýning Þjóðleikhússins
  • Skömm Ríkisútvarpsins
  • Gráir fyrir járnum á Gaza
  • Sameiningartákn þjóðar
  • Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.
  • Afleit stærðfræði
  • Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
  • Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Facebook

Flokkar

  • Atvinnumál (18)

  • Aðsendar greinar (5)
  • Borgarskipulag (3)
  • Efnahagsm (7)
  • Efnahagsmál (59)
  • ferðaþjónusta (2)
  • Fjármál (23)
  • Fjölmiðlar (10)
  • Heilbrigðismál (18)
  • Húsnæðismál (5)
  • Húsvernd (2)
  • Ítalía (2)
  • Jafnréttismál (2)
  • Ljóð (1)
  • Lögfræði (7)
  • Óflokkað (15)
  • Rannsóknarskýrslan (3)
  • Rekstur (4)
  • Saga (8)
  • Samfélagið (82)
  • Sjávarútvegsmál (20)
  • Skólamál (3)
  • stjórnlagaþing (1)
  • Stjórnmál (146)
  • stjórnsýsla (9)
  • Sveitarstjórnarmál (5)
  • Umhverfismál (5)
  • Uncategorized (3)
  • Utanríkismál (14)
  • Viðskipti (36)
  • Eyjan að upphafssíðu
  • Auglýstu á Eyjunni

Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Lúgan

Undirvalmynd

  • Lúgan
Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar

Eyjan - Smáratorgi 3, Kópavogi - eyjan@eyjan.is

  • Um Eyjuna
  • Auglýsingar