Netfangið er: lugan@eyjan.is
Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.
Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Ýmsir hafa orðið til þess að hnýta verulega í Agnesi Bragadóttur að undanförnu vegna skrifa hennar. Kalla hana illum nöfnum og ekkert til sparað, hún tekin niður eins og hægt er, jafnvel kölluð kerling. Það er of oft lagt konum til lasts í þessu samfélagi að hafa skoðanir, þora að segja þær og eldast svo í þokkabót. Ég læt það vera ef menn skrifa neikvætt undir nafni, verra er ef skrifin eru nafnlaus. Slíkt ber vott um kjarkleysi. Sjálf skrifar Agnes alltaf undir nafni og í pistlum sínum ætti hún að mega hafa sínar skoðanir eins og aðrir í þessu samfélagi og segja þær án þess að fólk taki sífelld andköf. Mér hefur sýnst í skrifum fólks, nafnlausum sem undir nafni, að fleiri séu stórorðir um þessar mundir en Agnes.
Morgunblaðið hefur verið töluvert í umræðunni að undanförnu. Ég er hrædd um að lítið bragð væri að því blaði ef skrif Agnesar Bragadóttur legðust niður. Nógu mikið setti það niður þegar Matthías Johannessen hætti og Styrmir Gunnarsson. Agnes er dugleg kona og væn þótt hún sé stundum orðstór og hvöss í tali. Ég deili oft ekki með henni skoðunum en ég met hana sem hreinskilna manneskju og ég veit að hún myndi duga því betur sem meira lægi við.
Og Styrmir Gunnarsson sat ekki of lengi sem ritstjóri Morgunblaðsins. Hann sat þar of stutt ef eitthvað er. Fjarveru hans sá fljótlega stað í yfirstjórn blaðsins. Ég vann lengi með þessu fólki og ber því vel söguna. Þessi skrif mín eru ekki gagnrýni á nýja eigendur eða útgefanda Morgunblaðsins. Þau eru algjörlega óviðkomandi þeim aðilum.