Netfangið er: lugan@eyjan.is
Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.
Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Síðastliðin ár hefur verið höfð uppi umræða sem tengist stjórnmálamönnum, hagsmuna- og eignatengslum þeirra gagnvart atvinnulífi og fjárhagslegri afkomu þeirra, með einum eða öðrum hætti. Einkum hefur þetta beinst að þeim stjórnmálamönnum sem hafa boðið fram krafta sína í landsmálunum. Flestir stjórnmálaflokkar hafa í kjölfar fyrrnefndrar umræðu tekið upp þau tilmæli að frambjóðendur geri grein fyrir sínum fjárhag, hagsmuna- og eignatengslum. Það er vel, þó að mati undirritaðs mætti oft taka dýpra á í þeim efnum.
Staðreyndin er hinsvegar sú að á þetta skortir mikið í sveitarstjórnarmálum. Almenna krafan er sú að stjórnmálamenn geri grein fyrir sínum málum. Það sama hlítur að eiga við um sveitastjórnarfólk, það er að þau geri með sama hætti grein fyrir sínum fjárhag, hagsmuna- og eignatengslum, með svipuðum hætti og nú er gert í landsmálunum.
Það þekkja flestir þá staðreynd að sveitastjórnarfólk getur haft töluverð áhrif á framgang mála. Hávær umræða hefur fylgt setu bæjarstjóra í Kópavogi og fleiri sveitastjórnarmenn hafa verið í umræðu sem tengist bitlingum og fyrirgreiðslupólitík. Í umræðunni hafa verið störf náskyldra, setur í ráðum og nefndum, svo einhvað sé nefnt.
Í ljósi umræðunnar og þeirrar staðreyndar að kosningar til sveitarstjórna eru framundan á næsta vori tel ég einsýnt að frambjóðendur þurfi að gera skýra grein fyrir sínum fjárhag, ásamt hagsmuna- og eignatengslum. Þannig munu kjósendur geta gengið til kosninga, upplýstir um þá frambjóðendur sem í boði eru og geta tekið sjálfstæða ákvörðun í kjörklefanum, út frá fyrirliggjandi upplýsingum.
Ég fagna því sveitarstjórnarfólki sem tekur fyrsta skrefið í þessa átt og gerir grein skýra fyrir fyrrgreindum tengslum og hagsmunum sem kunna að vera fyrir hendi.