Netfangið er: lugan@eyjan.is
Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.
Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Mjög alvarleg staða er komin upp með niðurskurði á þjónustu heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu nú um mánaðarmótin og sem hefur um árabil verið undirmönnuð.
Endurtekið hefur verið varað við afleiðingunum. Vaxandi álag verður í dýrarari þjónustu á skyndivaktir og stofumóttökur sérfræðinga út í bæ. Skyndiþjónusta kallar á skyndilausnir sem geta verið alvarlegar þegar til lengri tíma er litið. Með rannsóknum og gæðaþróunarverkefni innan heilsugæslunnar var reynt að meta afleiðingar af ómarkvissum ávísunum á lyf og þá aðallega sem gefin eru á skyndivöktum. Sýklalyfjaávísanir voru valdar þar sem kanna mátti hugsanlega afleiðingar í breyttu sýklalyfjanæmi helstu sýkingarvalda (baktería). Um endurteknar rannsóknir voru að ræða yfir áratug og borin saman ólík svæði á landinu m.t.t. þjónustu og vaktaálags. Sláandi sterk tengsl voru á milli sýklalyfjanotkunar barna og sýklalyfjaónæmis sem tengist miklu vaktarálagi.
Niðurstöðurnar hafa vakið eftirtekt um allan heim en síður hér heima hjá heilbrigðisyfirvöldum. Alþjóðlegar leiðbeiningar ráðleggja enda að sýklalyf skuli ekki notuð nema brýna nauðsyn beri til vegna hratt vaxandi sýklalyfjaónæmis í heiminum. Við viljum getað treyst á sýklalyfin þegar mikið liggur við. Sölutölur sl. ára sýna að sýklalyfjanotkunin er einna mest hér á höfuðborgarsvæðinu þar sem undirmönnun heilsugæslunnar er mest og vaktþjónusta mest notuð þar á meðal vaktþjónusta barnalækna. Notkunin er um helmingi meiri en t.d. á Akureyri. Sýklalyfjaónæmið er miklu alvarlegra en á hinum Norðurlöndunum og kemur sérstaklega ílla niður á heilsu barna.
Um er að ræða eitt alvarlegasta heilbrigðisvandamál sem upp hefur komið hér á landi í seinni tíð. Samt hafa heilbrigðisyfirvöld kosið að beina almennri heilbrigðisþjónustu í óhagkvæmari farveg og ganga gegn nauðsynlegri uppbyggingu heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu og eins og alþjóðlegar leiðbeiningar um notkun sýklalyfja gera ráð fyrir m.a. breskra heilbrigðisyfirvalda (NICE). Hætt er við að niðurskurðurinn komi harðast niður á veikum börnum sem þegar hafa þurft á meiri dagþjónustu heilsugæslunnar að halda en hingað til hefur verið hægt að veita.
Vaxandi vanheilsa og þá sérstaklega barna og vandamál tengt að ílla gangi að ráða við alvarlegar sýkingar verða fyrstu alvarlegu afleiðingarnar eins og þegar er farið að bera á.