Netfangið er: lugan@eyjan.is
Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.
Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Ég hef nú reynt að fá birta stutta athugasemd við umdeilda blaðamennsku Fréttablaðsins en fæ hana ekki birta í dagblöðum landsins. Læt lesendum eftir að dæma um það hvort hér sé á ferðinni ritskoðun og yfirhylming fjölmiðla sem beitt er í krafti aðstöðu sinnar.
Athugasemd við blaðamennsku.
Blaðamaðurinn Garðar Örn Úlfarsson (gar) skrifar enn eina blaðagreinina um mig í Fréttablaðið sl. laugardag. Garðar Örn hefur þegar skrifað um tuttugu greinar er fjalla um mig sem persónu. Skrif hans innihalda nær undantekningarlaust meiðandi dylgjur og rangfærslur og tengjast jafnan hagsmunabaráttu Halds ehf. sem á ósamþykkta lóð á Álftanesi. Helsti forsvarsmaður fyrirtækisins er dóttir fyrrum aðaleiganda Fréttablaðsins.
Vegna hatrammra árása og linnulausrar umfjöllunar um mig hef ég farið fram á opinbera rannsókn lögreglu á ærumeiðingum og annari ólíðandi framkomu sem eigendur Halds ehf. með fulltingi fjölmiðla hafa haft í frammi síðustu misserin.
Ég fér fram á að blaðamaðurinn Garðar Örn Úlfarsson, skrifi ekki fleiri fréttagreinar um mig, en hann hefur þegar fengið dóm á sig fyrir meiðyrðaskrif. Umhugsunarvert er að engar virkar siðareglur er að finna um framgöngu fjölmiðla og blaðamanna. Ógjörningur virðist vera að verjast skipulögðum neikvæðum árásum fjölmiðla nema gegnum dómstóla.
Fréttablaðið hefur hafnað birtingu á athugasemdinni með þeim rökum að þær eigi ekki erindi við lesendur.
Morgunblaðið hefur einnig hafnað birtingu athugasemdanna með þeim rökum að þeir vilji ekki blanda sér í þessar deilur.