Þínar fréttir, þín skoðun






8.3 2009 - Ummæli ()

Þjóðlífsþankar: Vítisenglar

Höfundur: Guðrún Guðlaugsdóttir blaðamaður
Flokkur: Samfélagið   Efnisorð: "jakkafatagæjar", Enron, landganga, ótti, vítisenglar

Mikill er óttinn við Vítisenglanna. Það eru manneskjur í leðurklæðum sem þeysast um í hópum á mótorhjólum. Oft á tíðum kemur þessum leðurklæddu hópum illa saman og láta jafnvel hendur skipta. Mér fannst þó full mikið úr því gert þegar nokkrir vítisenglar ætluðu að heimsækja vini sína á Íslandi og var snúið aftur. Harðsnúið lögreglulið okkar mætti á staðinn og ekki var að sökum að spyrja. Íslenskir vítisenglar urðu að borða sinn afmælismat sjálfir, án útlendra gesta að mestu. Við hin, sem í mesta lagi höfum eignast apaskinnsjakka og fengum kannski reiðhjól í fermingargjöf, gátum andað léttar. Við vorum úr allri hættu.
Þetta gerðist á svipuðum tíma og verið var að sýna þátt um stórþjófnaðinn sem Enron fyrirtækið ástundaði í Bandaríkjunum með siðblindingja í forustuhlutverki. Menn sem kunnu að reka starfsfólk án þess að láta það standa sér fyrir svefni. Velklæddir og brosandi gáfu þeir skít í vel unnin störf heiðarlegra undirmanna. Þeim hugnaðist jú síst sá eiginleiki – heiðarleikinn – þeir vildu ná í peninga.

Á svipuðum tíma og landið okkar var vasklega varið fyrir komu hinna erlendu vítisengla var enn ein greinin skrifuð í fjölmiðla erlendis um hvernig við Íslendingar höfum orðið að bráð heilum hópi „jakkafatagæja“ sem hafa á siðlausan hátt rúið okkur fjármunum svo við erum komin á vonarvöl, nánast á „sveitina“ hjá öðrum þjóðum. Í greininni kom fram enn einu sinni að þessari aðför að þjóðinni stjórnuðu „hámenntuð ungmenni“ sem metnaðarfullir uppalendur virðast hafa gleymt að kenna almenna mannasiði og sæmandi framferði í viðskiptum. Það var mikil og afdrifarík gleymska hjá uppalendunum. Ekki var betra veganestið sem ungmennin fengu í rándýru og fínu erlendu háskólunum.

Í fyllingu tímans sneru hinir „hámenntuðu“ aftur til heimalandsins, sleiktir eins og frímerki,  til þess að ná sem mestu.  Verst að lögreglan skyldi ekki vera á staðnum þegar þeir tóku hér land í upphafi ferils síns. Það munað því að þeir voru ekki leðurklæddir og tattúveraðir með hugann helst við mótorhjól. Nei, þeir voru fínir og penir og hugsuðu hærra. Vildu kraftmikla og dýra bíla, skip og flugvélar – en fyrst og og fremst að ná í eins mikla peninga og þeir gætu, hvernig sem þeir færu að því. Og það tókst þeim fyrir tilstilli andvaraleysis hins venjulega manns og stjórnmálamanna sem ekki höfðu einu sinni hugmyndaflug í svona tryllingslegar aðfarir. Sennilega hafa þeir haldið í heimaóttarskap sínum að slíkt viðgengist bara í James Bond myndum þar sem hinn illli stefnir ævinlega að heimsyfirráðum, siðspilltur og forhertur.

Viðhorf og atferli hinna „hámenntuðu“ síaðist út í samfélagið.

Fróðlegt var t.d. að fylgjast með þegar hinir minni spámenn hér fóru að taka við sér. Fyrst sátu þeir með sigin skolt og reyndu að læra. Svo fóru þeir feimnislega að taka til fyrirmyndar aðfarir hinna „hámenntuðu“. Sperrtust upp,  fóru að pukrast við reka það starfsfólk sem þeim líkað ekki við og fengu víst sumir dálítið „kikk“ út úr því. Með æft svipleysi, (það er talið töff),  felldu smámennin sinn „ógnardóm“. Áhugavert atferli fyrir sálfræðinga.

En smámennum var viss vorkunn, þau höfðu jú ekki áður fengið færi á að vera eitthvert númer á leiksviði lífsins.

Að hætti hinna bandarísku bandítta tóku nú hin fróðleiksfúsu smámenni að losa sig við gagnrýna hugsun umhverfisins en sóttust þess meira eftir  „jákvæðum anda“ í nágrenni við sig. Stundum var slíkt á kostnað fagmennskunnar – en hjá lítilsigldu fólki er vitið jú ekki meira en Guð gaf.

Almenningi til hagræðis má þekkja smámenni úr hópi venjulegs fólks og mikilmenna á því að þau sækjast sérstaklega eftir samvistum við svokallaðar „grúppíur og sleikjur“. Ákvarðanir þeirra eru lítt af setningi slegnar. Og þau hafa gjarnan verið aldin upp við harðræði metnaðarfullra foreldra sem trúa því að hamingja manna mælist í metorðum.

Því miður er það ekki svo. Og nú situr margt af þessu ógæfusama fólki með sárt ennið. Hefur gert ýmislegt það sem seint gleymist þeim sem fyrir hafa orðið. Og nú óttast það hið fyrirsjáanlega – að eiga eftir að fá sitt.  Lífið rekur allt ofan í kok á fólki. Gildir þá einu hvort það aðhyllist bandaríska stjórnunarhætti eða einhverja aðra háttsemi. Hvort það er leðurklætt og tattóverað eða í penum jakkafötum með stirðlegar hreyfingar af metnaði og bældum tilfinningum. Það kemur að skuldadögum. Þetta erum við að sjá gerast í íslensku samfélagi núna.

Og sá sem að lokum öllu ræður hefur óendanlegt hugmyndaflug þegar að því kemur að láta fólk gjalda misgjörða sinna. Jafnvel börnin gjalda synda feðra sinna.  Það eru til verri örlög en þau að láta íslenska lögreglu snúa sér til baka í Leifsstöð.



« Árangur SÁÁ
Guðlaugur Þór Þórðarson segðu satt , svona rétt fyrir prófkjör! »

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Nýtt inn um lúguna

  • Jólasýning Þjóðleikhússins
  • Skömm Ríkisútvarpsins
  • Gráir fyrir járnum á Gaza
  • Sameiningartákn þjóðar
  • Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.
  • Afleit stærðfræði
  • Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
  • Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Facebook

Flokkar

  • Atvinnumál (18)

  • Aðsendar greinar (5)
  • Borgarskipulag (3)
  • Efnahagsm (7)
  • Efnahagsmál (59)
  • ferðaþjónusta (2)
  • Fjármál (23)
  • Fjölmiðlar (10)
  • Heilbrigðismál (18)
  • Húsnæðismál (5)
  • Húsvernd (2)
  • Ítalía (2)
  • Jafnréttismál (2)
  • Ljóð (1)
  • Lögfræði (7)
  • Óflokkað (15)
  • Rannsóknarskýrslan (3)
  • Rekstur (4)
  • Saga (8)
  • Samfélagið (82)
  • Sjávarútvegsmál (20)
  • Skólamál (3)
  • stjórnlagaþing (1)
  • Stjórnmál (146)
  • stjórnsýsla (9)
  • Sveitarstjórnarmál (5)
  • Umhverfismál (5)
  • Uncategorized (3)
  • Utanríkismál (14)
  • Viðskipti (36)
  • Eyjan að upphafssíðu
  • Auglýstu á Eyjunni

Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Lúgan

Undirvalmynd

  • Lúgan
Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar

Eyjan - Smáratorgi 3, Kópavogi - eyjan@eyjan.is

  • Um Eyjuna
  • Auglýsingar