Þínar fréttir, þín skoðun






5.1 2009 - Ummæli ()

Um þöggun og ritskoðun

Höfundur: Þór Jóhannesson bókmenntafræðingur og nemi
Flokkur: Fjölmiðlar, Stjórnmál   Efnisorð: blogg, ritskoðun, þöggun

Það er ekki ritskoðun að birta ekki skrif frá fólki sem felur sig á bak við nafnleynd. Ef menn vilja skrifa og gagnrýna eða jafnvel ráðast á einhvern persónulega þá eiga þeir að bera fulla ábyrgð á því og sá sem skrifað er um hefur fullan rétt á því að vita hver er að skrifa níðinn því þá getur hann beitt fyrir sig lýðræðislegum lögum landsins og höfðað meiðyrðamál gagnvart viðkomandi níðingi.

Þess vegna er það ekki ritskoðun að birta ekki viðbjóðslegar athugasemdir sem hafa ekkert að gera í umræðuna nema e.t.v. drepa henni á dreif.

Hver og einn bloggari hefur vissulega vald yfir því hverjir geta fengið athugasemdir sínar birtar á hans síðu enda er blogg ekki ósvipað og dagbók. Sumir eru með læst blogg sem enginn getur lesið nema útvaldir. Aðrir eru með opin blogg sem allir geta lesið en enginn skrifað athugasemdir. Þriðja gerðin af bloggurum velur úr athugasemdunum sem á þeirra blogg eru skrifuð og svo eru aðrir sem hreinlega bita allt – alveg sama hvað. Það er mjög einstaklingsbundið hvað hver og einn bloggari velur að gera – líkt og sá sem skrifar dagbók.
Aðrar reglur gilda um fréttastofur – þær eru ekki persónulega dagbók og þar eru ekki skrifaðar hugleiðingar við fréttaskrif (ég vona a.m.k. ekki). Þeirra skylda er að segja satt og rétt (og hlutlaust ef fréttastofan gefur sig út fyrir að vera hlutlaus) frá og á netmiðlum hefur sprottið upp frábært kerfi til hliðar við fréttir þar sem almenningur getur tengt sig fréttinni og tjáð sig um hana. Þetta kerfi köllum við athugasemdakerfi. Í því koma oft fram upplýsingar sem ekki hafa komið fram í fréttinni og ef fréttastofan – mbl.is í þessu tilviki – telur að þar sé eitthvað siðlaust eða ólöglegt á ferðinni hefur hún allar upplýsingar um viðkomandi bloggara sem hjá þeim er skráður og getur því hreinlega kært hann eða loka á hann.

En fréttastofa mbl.is býður einnig upp á að fólk tjái sig í kerfinu undir tölvupóstfangi eða IP tölum – þar getur hvaða ræfill með lyklaborð og internettengingu misnotað aðstöðu sína og vegið úr launsátri að hverjum sem er. Þetta þarf að stoppa því annars endar heiðarleg umræða á þessum frábæru umræðuþráðum mbl.is eins og bullið sem fylgir athugasemdakerfinu á eyjan.is – þar sem allt logar í viðbjóði og árásum á persónur og einstaklinga skrifuðum úr launsátri. mbl.is verður að marka sér reglur um þessa hluti og það að banna nafnlausum einstaklingum að skrifa er einfaldlega ekki ritskoðun – það er ákvörðun um hversu langt miðillinn vil teygja sig í þjónustu sinni við lesendur.

Hitt er svo alvarlegast af öllu – það er þegar fréttastofa kýs að fjarlæga alla umræðu um fréttina í heild sinni vegna þess að þar hefur ýmislegt komið fram sem þeim líkar ekki. Þetta er þöggun og ritskoðun af verstu gerð og er ekkert lík því þegar persónulegur bloggari klippir úr ófyrirleitnar aðdróttanir eða hótanir i sínu persónulega bloggi, því einmitt þarna reynir á hversu megnug fréttastofan er að standa á bak við fréttina sem hún skrifaði.

Í fréttinni um Ólaf Klemensson og Guðmund bróðir hans gat fréttastofan ekki staðið á bak við fréttina þar sem hver maðurinn á eftir öðrum kom inn á athugasemdakerfið og lýsti atburðunum á allt annan hátt en Ólafur gerir í fréttinni. Vegna þessara – augljóslegu lyga í Ólafi – spruttu upp heitar og ósvífnar umræður sem oft á tíðum voru ekki siðsamlegar og engum til sóma. Þeir sem réðust að persónu Ólafs með hótunum verða einfallega að standa bak við sín orð (enda undir fullu nafni og kennitölu) ellegar hljóta kæru fyrir – þannig virkar lýðræðið  og málfrelsið. Það er ekki hlutverk fréttastofunnar að vera lögfræðingur og dómari í meiðyrðamáli.

Það er því ekkert sem afsakar þessa þöggun og ritskoðun fréttastofunnar mbl.is á fréttinni „Taldi sér ógnað“ – að líkja saman persónulegu bloggi og fréttastofu er eins og líkja saman bláu og gulu og verður því að flokkast undir litblindu – og það held ég einmitt að útskýri best ákvörðun mbl.is, því það er bæði gamall og nýr sannleikur að þar sjá menn lífið og tilveruna í einum og sama litnum – eða bláum.



« Færeyskt dagakerfi í stað kvótakerfisins
Hvers á Bolungarvík að gjalda? »

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Nýtt inn um lúguna

  • Jólasýning Þjóðleikhússins
  • Skömm Ríkisútvarpsins
  • Gráir fyrir járnum á Gaza
  • Sameiningartákn þjóðar
  • Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.
  • Afleit stærðfræði
  • Um snjallsímasvindl í háskólum landsins
  • Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Facebook

Flokkar

  • Atvinnumál (18)

  • Aðsendar greinar (5)
  • Borgarskipulag (3)
  • Efnahagsm (7)
  • Efnahagsmál (59)
  • ferðaþjónusta (2)
  • Fjármál (23)
  • Fjölmiðlar (10)
  • Heilbrigðismál (18)
  • Húsnæðismál (5)
  • Húsvernd (2)
  • Ítalía (2)
  • Jafnréttismál (2)
  • Ljóð (1)
  • Lögfræði (7)
  • Óflokkað (15)
  • Rannsóknarskýrslan (3)
  • Rekstur (4)
  • Saga (8)
  • Samfélagið (82)
  • Sjávarútvegsmál (20)
  • Skólamál (3)
  • stjórnlagaþing (1)
  • Stjórnmál (146)
  • stjórnsýsla (9)
  • Sveitarstjórnarmál (5)
  • Umhverfismál (5)
  • Uncategorized (3)
  • Utanríkismál (14)
  • Viðskipti (36)
  • Eyjan að upphafssíðu
  • Auglýstu á Eyjunni

Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Lúgan

Undirvalmynd

  • Lúgan
Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar

Eyjan - Smáratorgi 3, Kópavogi - eyjan@eyjan.is

  • Um Eyjuna
  • Auglýsingar