16.1 2012

Jólasýning Þjóðleikhússins

Enginn íslenskur rithöfundur á síðustu öld stenst samjöfnun við Halldór Laxness. Þekking hans og innsæi, dirfska, orðvísi og víð veraldarsýn tekur öðru fram. Hann var skáld minnar kynslóðar, en virðist síður höfða til ungu kynslóðarinnar, a.m.k. ekki þess hluta hennar sem alinn er upp við sýndarveruleika bandarískra kvikmynda. Ef til vill væri ástæða til þess að kynna ungu kynslóðinni enn frekar heim Halldórs Laxness til þess auka henni gagnrýni og opna henni víðari sýn. Ein leiðin til þess er að flytja verk hans á leiksviði eins og hefur á … meira



6.1 2012

Skömm Ríkisútvarpsins

Áramótaskaup Ríkisútvarpsins var eins og við var að búast grátt gaman, þar sem á einstaka stað var slegið á létta strengi, en einkum níðst á fólki og óþverrabrandarar hafðir í fyrirúmi. Hefur öllu skammotað aftur síðan Stefán Jónsson, Flosi og Jón Múli skemmtu með léttri gamansemi sinni. Af öllu aumu í Áramótaskaupi Ríkisúvarpsins frá upphafi voru þessi orð þó verst: „Við tökum þó ekki ábyrgð á innfæddum sinnissjúkum karlmönnum á miðjum aldri sem skjóta þig og/eða sprengja húsið þitt með áburðarsprengjum.” Nú veit á … meira



3.1 2012

Gráir fyrir járnum á Gaza

Nú stendur Ísraelsher grár fyrir járnum og segist tilbúinn að hefja nýtt jólagereyðingarstríð á Gaza-ströndinni. Ég sé hvergi skrifað um þetta á íslenskum fréttasíðum sem eru uppteknar af þyngd Ásdísar Ránar, túrtappaauglýsingum og öðru yndisefni sínu. Nú erum við nýbúin að  viðurkenna ríki Palestínumanna. Ég sakna þess að heyra ekki mótmælaraddir við blygðunarlausum hótunum ísraelska hersins um yfirvofandi múgmorð á saklausu fólki og eyðileggingu. Ljóst er að þeir þykjast geta farið sínu fram, óhræddir við linkuna þrátt … meira



2.1 2012

Sameiningartákn þjóðar

Ólafur Ragnar Grímsson er mikilhæfur stjórnmálamaður og verður talinn meðal svipmestu stjórnmálamanna lýðveldistímans. Hann getur brugðið sér í mörg líki og látið með eindæmum ólíkindalega og komið andstæðingum sínum á óvart, eins og slyngum stjórnmálamönnum er tamt. Flestir túlka óljós orð hans í áramótaávarpinu á nýársdag á þann veg, að hann muni ekki bjóða sig fram til forseta að nýju. Hins vegar má eins vel túlka þau á þann veg, að ef á hann verði skorað, muni hann svara kalli. Litlar líkur eru hins vegar á því að á hann … meira



23.12 2011

Hafnarfjarðarbær ekki féflettur. Svar við grein Karls Garðarssonar.

Í Fréttablaðinu 21. desember birtist greinin „Hafnarfjarðarbær féflettur - og öllum er sama“ eftir Karl Garðarsson. Karli er þakkað fyrir að opna mjög þarfa umræðu, en þó eru nokkur atriði varðandi aðkomu embættis byggingarfulltrúa sem ástæða er til að leiðrétta, og jafnframt að minnast á ábyrgð byggingarstjóra í þessu máli. Karl fjallar um skort á réttri skráningu byggingarstigs fasteigna, sem er grundvöllur álagningar fasteignagjalda. Þar sem hús sem flutt er inn í séu enn skráð sem fokheld, innheimtist aðeins hluti lögboðinna af að … meira



15.11 2011

Afleit stærðfræði


Fyrir nokkrum dögum birtist prófessor Hannes Hólmsteinn Gissurarson á skjánum í Kastljósi, bústinn og glaðbeittur. Hann var að kynna bók sína um hin nánu tengsl íslenskra sósíalista við Moskvu og honum var tíðrætt um Rússagullið, sem hann kvað hafa fjármagnað verkfall Dagsbrúnar í desember 1952. Prófessorinn bar saman mannvonsku nasista og kommúnista og sagði kommúnista hafa myrt 100 milljónir manna meðan nasistar hefðu einungis myrt 20 milljónir – hinir síðarnefndu þar með verið öllu skárri. Þúsund ára ríki nasista stóð í 12. Á þessum … meira



13.11 2011

Um snjallsímasvindl í háskólum landsins

(Frá ritstjórn Eyjunnar: Sú almenna regla gildir, að aðsendar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar nema sérstakar aðstæður komi til. Eyjan hefur kynnt sér bakgrunn þessa máls og telur að greinin eigi erindi við lesendur þótt höfundar hennar komi ekki fram undir nafni.) Á seinustu árum, og þá sérstaklega á þessu ári, hafa snjallsímar orðið mjög vinsælir hér á landi. Með þessum símum er ekki bara hægt að spila leiki, taka upp myndbönd og ljósmyndir heldur er hægt að vista heilu gagnasöfnin inni á þessu litla tæki. Snjallsímar, eins og … meira



20.10 2011

Baráttan við skuldavanda heimilanna: Öllum brögðum beitt?

Níunda október 2011 hófst önnur umferð í Íslandsmóti seljenda og kaupenda húsnæðislána heimilanna við stóra samningaborðið úr fyrstu umferð, þegar aleina fulltrúa kaupenda var fleygt heim til sín eins og víðfrægt er orðið og Jóhanna og þau fjórtán fóstbræður seljendur og eigendur húsnæðislána heimilanna sömdu einhliða fyrir kaupendur. Með ósk og von, þau hafi lært eitthvað síðan, er því miður ekki uppörvandi í upphafi leiks hve hefðbundinn blær seinkunar tafataktík samningatækni úr herbúð seljenda og Jóhönnu er þegar farin að um … meira



17.10 2011

TILRAUNIN UM ÍSLAND

Í grein sinni „Rányrkjubú“ (TMM, 3, 2011), þar sem hann leitar skýringa á HRUNINU, setur Stefán Jón Hafstein spurningarmerki aftan við kenninguna um, að íslenska hrunið hafi stafað af tilraun í anda nýfrjálshyggju í aðdraganda hrunsins. Rök Stefáns Jóns eru þau, að í stjórnartíð Davíðs Oddssonar og Geirs H. Haarde hafi ríkisbáknið þanist út, ríkisstofnunum og ríkisstarfsmönnum hafi fjölgað, skattar sem hlutfall af VLF hafi hækkað (að vísu bara á hina efnaminni), og í stað aukinnar samkeppni hafi einokun eða fákeppni fest sig í sé þetta … meira



29.9 2011

Formaður bændasamtakanna á villigötum

Hóflegar launahækkanir verkafólks réttlæta ekki 10% hækkun á landbúnaðaraðfurðum. Til þess að mæta þeim hefði þurft að hækka þær um 1% til þess að matvælaiðnaðurinn fengi „skaðann“ bættan. Þrátt fyrir þessa staðreynd fór Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, mikinn í hádegisfréttum útvarps og gagnrýndi forseta ASÍ fyrir að benda á þessa einföldu staðreynd. Í stað þess að bera fyrir sig tölur og rök sló Haraldur um sig með fullyrðingum sem því miður eiga fátt skylt við veruleikann. Það er því fróðlegt að … meira






Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Facebook

Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar